Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 20
Sq eini, sem lifði snjóflóðið af, var
Jóhann Kristmundsson. Allt annað
fólk er að Goðdal var, var ldtið eða
lést strax.
Þegar búið var að losa alla og
koma þeim í húsin þama framfrú,
var hafist handa um gerð sleða og
öll líkin lútin þar d. Síðan drógu sex
menn hann niður flóann fyrir neð-
an Skarðsréttina og yfir úna, en þar
yfirgúfu Bjami og Andrés okkur.
Þeir höfðu dregið sleðann allan tím-
ann ósamt mér og einhverjum fleir-
um er ég man ekki lengur að nefna,
en ætluðu nú að Skarði til að ljúka
okkar múlum þar.
Ég fór ekki með þeim en hélt
óffam drætti.
Hér komu nýir menn til verks og
ætluðu að halda drættinum úfram.
Er þeir höfðu, dsamt okkur, sem enn
drógum, komist smú spöl dleiðis,
kom í ljós að allir vom svo örmagna
að skilja varð sleðann eftir og lausir
rétt ndðum við heim að Svanshóli,
en þangað var styðst. Þar var tekið
eins vel d móti öllum og hægt var.
Þegar þar var í hús komið, md
segja, að allir hafi oltið sofandi útaf,
þar sem þeir stóðu.
Eftir nokkum svefn og hvíld, var
lagt af stað d ný, sleðinn sóttur og
síðan dreginn norður að Kaldrana-
nesi, en fra Svanshóli niður að Kald-
rananesi var alldrjúgur spölur.
Við búrum líkin í kirkjuna og þar
lauk þessari ferð, er hófst að Skarði
en endaði hér í kirkju Kaldrananess.
Þessi ferð var iöng og ströng fyrir
alla sem í henni tóku þótt.
Það er óhætt að fullyrða það, að
allir lögðu fram þd krafta er þeir
framast úttu til.
Hólmvíkingar tóku Jóhann og
settu hann d sleða. Síðan var sóttur
góður drúttarhestur í húsin, er dró
sleðann yfir Bassastaðahúls, á svo-
nefndan Stekk á Bassastöðum, og
þaðan var hann svo fluttur d bdti til
Hólmavíkur.
Af Jóhanni var tekinn fóturinn er
fastur hafði verið undir steinveggn-
um. Síðan ld leið hans til Reykjavík-
ur og þar vann hann við skrifstofu-
störf hjú Ofnasmiðjunni, meðan
aldur entist.
Þrjú böm Goðdafshjóna, þau Erla,
Haukur og Bergþór, vom í skólum
og því fjarverandi er snjóflóðið féll
og em þau ú lífi þegar þetta er ritað.
Aðvörun
Jóhann vissi að eitthvað myndi
koma fýrir. Eitthvað vdlegt. En hvað
það yrði, vissi hann ekki og því
hafði hann tryggt allar skepnur sín-
ar og allt annað er tryggjanlegt var.
Matthías ú Kaldrananesi vissi
mikið um þetta múl. Hann sagði
mér frd því að Jóhann hefði talið sig
óhultan meðan faðir sinn dveldi hjú
sér að Goðdal.
Sumarið 1948 dó Kristmundur og
12. desember sama dr gerast þessir
voðaatburðir.
Kristmundur var búinn að búa
langa tíð að Goðdal. Stundum kom
hann norður til okkar. Hann sagði
þd sögu til að mynda, að er hann
var að draga að búi d hestum sín-
um frd Hólmavík eða öðmm fjar-
lægum og erfiðum stöðum, og kom
heim aftur, þd var það svo undar-
legt að hestarnir stoppuðu aldrei að
Kvíabólinu. Kýmar er d rölti vom,
stönsuðu þar aldrei. Það var engu
líkara en að skepnunum væri dvallt
stuggað þama frd, kæmu þær þar í
grennd. Hann róðlagði Jóhanni að
byggja ekki d þessum stað og var
uggandi um velfarnað þess er þar
byggði, því hann taldi þama vera
illan dlagablett. Til sönnunar múli
sínu sagði Kristmundur ýmsar sög-
ur. Hann var sannorður heiðurs-
maður og fór ekki með annað en
það, sem hann taldi satt vera. Fyrir
þetta var Kristmundur þekktur.
Kvíabólið var grænt og fi'nt, eins
og þessi gömlu ból vom, og því eðli-
lega freistandi byggingarstaður.
Snjóflóðið spratt fram úr miðri
hlíðinni og þaðan var eins og því
væri stýrt beint d húsið. Breidd þess
var hin sama og hússins, en í því
bjó þessi kyngikraftur, sem að fram-
an greinir.
Eitt var það, sem furðu vakti, en
það var að þeir hlutir, sem Svan-
borg dtti, til að mynda matar- og
kaffistell, vom óbrotnir.
Kálfakjötspott-
réttur
1 kg kdlfakjöt af framparti,
Hveiti til að þekja með,
Salt og pipar,
2 msk olía,
2 laukar, saxaðir,
6 msk þurr, hvítur vermút,
3 dl þurrt hvítvín,
500 g tómatar, afhýddir,
kjamaðir og saxaðir,
2 msk tómatmauk,
1 tsk saxað basilikum,
1 tsk söxuð bergmynta,
Ræma af appelsínuberki,
2 hvítlauksgeirar, marðir,
250 g sveppir,
Saxað basilikum til skrauts
(md sleppa).
Skerið kdlfakjötið í 2,5 sm bita.
Kryddið hveitið með salti og pipar
og veltið kjötbitunum upp úr því.
Hitið olíuna d pönnu, bætið kjötinu
d pönnuna og brúnið það d öllum
hliðum.
Setjið í pott, sem stinga md í ofn.
Bætið laukunum ú pönnuna og
steikið þar til þeir em orðnir gylltir.
Setjið í pottinn dsamt því sem eftir
er af hrdefninu. Ldtið suðuna
koma upp og ldtið síðan malla í
160°C heitum ofni í um 2 klst. eða
þar til kjötið er orðið meyrt. Fjar-
lægið appelsínubörkinn.
Skreytið með basilikum ef notað
er. Berið fram með soðnum núðl-
um.
Handa 6.
16 Heima er bezt