Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.12.1941, Qupperneq 9

Æskan - 01.12.1941, Qupperneq 9
Jólablað Æskunnar 1941 á hann. Hann þráði sveitina, og kassinn minnti hann á hana.------- Þegar leið á útmánuði, kom dálítiS leiSinlegt fyrir. FaSir hans missti atvinnuna. Fyrstu vikurn- ar fór hann út á hverjum degi, til þess aS rejma að fá vinnu á nýjum stað, en það har engan árangur. Þá fékk móðir lians vinnu við þvotta og hreingern- ingar lijá öðrum. Hún lcom lieim seint á kvöldin, dauðþreytt og slitin með rauðar og bólgnar liend- ur. Það var heldur ekki eins skemmtilegt, þegar faðir lians átti að vera heima. Hann fór svo oft burt og skildi drenginn einan eftir, og þegar hann kom aftur, var alltaf vond lykt af honum. Svo fleygði hann sér upp í rúm og fór að hrjóta. Svo tók hann oft eitthvað með sér, einhvern smáhlut og kom ekki með hann aftur. Og þegar mamma kom heim, þá saknaði hún lilutarins og fór þá undir eins að gráta. Eitt kveldið nam hún staðar í dyrunum, tók hendinni um lijartað og lirópaði: „Gullúrið þitt, Marteinn litli!“ Drengurinn leit við. Gullúrið var horfið af sín- um stað, það var engum blöðum um það að fletta. Það var eitthvað svo autt og snautt á veggnum, þar sem það liafði hangið. Það kvöld grét mamma lians með þungum ekka, svo ,að liann heyrði til liennar, þar sem hann lá í sínu bóli. Pabbi lians var ekki kominn heim. Nokkrum dögum seinna var úrið komið aftur á sinn stað, og það ljómaði af því eins og sól. Á hverju kvöldi staðnæmdist mamma hans i dyrun- um og gætti að úrinu. Það gekk vel í lieila vilcu. En svo livarf úrið að nýju. Það kvöld grét mamma ekki á sama liátt og áður. En hún stundi svo óskaplega sárt. Einu sinni fór Marteinn aleinn niður alla stiga. Pahbi hans var sofandi, og það var vond lykt bæði í eldhúsinu og svefnherberginu. Engin börn voru í garðinum, svo að Marteinn fékk að vera þar útaf fyrir sig. Hann settist á tröppurnar og fór að hugsa um blessaða sveitina sína. Hvernig skyldi nú ömmu líða? Skyldi liún hafa allar sömu kýrnar í fjósinu? Og livernig skyldi nýja fólkið í Grenililíð líta út? Marteinn litli lirökk við. Það hreyfði sig eitt- hvað þarna hjá sorptunnunni. Hvað gat það verið? Dálítið, frammjótt roltutrýni kom í ljós. Mar- teinn þorði varla að draga andann. Roltan horfði á liann um stund skærum, forvitnislegum augum. Síðan fór hún að naga brauðskorpu, sem lá rétt hjá tunnunni. Það var merkilegt, að rotta skyldi geta verið svona falleg. Þvi hefði hann aldrei trú- að! Og svo var hún vist dauðhrædd, auminginn, engu síður en hann sjálfur! Aumingja rottugreyið! Nú kom einliver inn í garðinn. Rottan hvarf. Marteinn litli tók skjóta ákvörðun. Hann hljóp upp alla stigana og sótti nokkra brauðmola upp í eldhús. Svo fór hann niður aflur, settist á tröpp- una og beið rólegur. Eftir langa stund kom rottan aftur, það bar ekki á öðru. Marteinn litli fleygði brauðmolum til liennar. Rottan liugsaði sig um nokkra stund. Svo trítlaði hún af stað og náði í molana og át þá. Marteinn horfði með ákefð á rotluna. Iiann fleygði hverjum bitanum eftir ann- an, og loks hafði hún fengið allt saman. Marteinn litli skemmti sér vel. Nú kornu einhverjir krakkar inn í garðinn og rottan faldi sig bak við tunnuna, og Marteinn lilli fór upp til föður síns, sem lá og svaf úr sér ölvímuna. Þetta sama endurtók sig dag eftir dag. Marteinn lilli lilakkaði til þess á liverjum morgni, að fá að sjá rotluna sína aftur. Hún var nú orðin svo tamin, að hún át brauðmola úr lófa drengsins. En svo einn dag fann Marteinn félaga sinn dauð- an með sundurkramið höfuð, fyrir framan sorp- tunnuna. Þá þoldi Marteinn ekki mátið. Hann fór að hágráta. Hann hljóp upp stigann og mætti föð- ur sínum í eldhúsdyrunum. Hann var að fara út, en nú tók liann drenginn í fang sér. „Hvað gengur ú? Hvað er að þér, drengur minn ?“ „Ó, rottan mín! Aumingja rottan mín!“ kvein- aði Marteinn litli og grét, svo að liann gat varla stamað fram orðunum. Faðirinn settist á stól með drenginn. Hann botn- aði ekkert í, hvað þetta var, sem barnið var að tala um. Drengurinn faldi andlit sitt upp við brjóst lians og kvartaði og barmaði sér. Faðirinn 129

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.