Æskan - 01.12.1941, Side 14
Jólablað Æskunnar 1941
Gam/ar jólavísur og þulur |S
Það á að gefa börnum brauð.
Það á að gefa börnum brauð
að bíta i á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist Jmu úr bólunum,
væna flis af feitum sauð,
er fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.
Grýla kallar á
börnin sín.
Grýla kaltar á börnin sín,
þegar hún fer að sjóða til jóla:
Komið hingað öll til min,
ykkur vil eg bjóða.
Kleppur liann skal sjálfur sjóða,
sá þau verkin fullvel kann,
en hún Skjóða á að bjóða
öllum lýðum þjóða.
Nýpa, Típa,
Næja Tæja,
, Nútur Pútur,
4 Nafar Tafar,
Láni, Gráni,
Leppnr, Skreppur,
Loki, Poki,
Leppa tuska, Langleggur
og Leiðindaskjóða.
Viðlag.
Æðsl allra eika,
eitt tréð ber skjól.
Þar vildi eg leika
þríhelg öll jól.
Jólasveinar
ganga um gólf.
Jólasveinar ganga um gólf
með gyllian staf í liendi.
Móðir þeirra sópar gólf,
og strýlcir þá með vendi.
'ur við þeim og bar við himin, með mjallhvíta snjó-
húfu á höfði.
„Eg vildi óska, að við næðum þangað, fyrir
sólarfall,“ sagði Grænklæddur. „Að öðrum kosti
er ekki gott að segja, hvernig fer fyrir okkur.“
En vegurinn var langur og vetrardagurinn stutt-
ur. Sólin lækkaði óðum á lofti. — Hún logaði nú
rauð sem blóð niður við fjallabunguna. En yfir
tindinn á Háafelli færðust kvöldskuggarnir, kaldir
og bláir. Og í hrauninu fyrir neðan fellið lá Tóti
— Sóti — langi — Ijóti og beið.
Siðan gekk sólin undir, og flugvélin flaug beina
leið inn i bláan kvöldskuggann. Langur, loðinn
bandleggur kom upp úr djúpinu, og stór og Ijót
krumla hremmdi flugvélina og dró hana niður lil
sin með 611 u saman. Þyturinn í loftinu þagnaði
skyndilega. En uppi á Háafellstindi sat’ Siggi
svarti og grét, og tárin hans komu veltandi niður