Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1941, Side 17

Æskan - 01.12.1941, Side 17
Jólablað Æskunnar 1911 liætta á að eg gleymdi því, sem mér datt fyrst í liug, á meðan eg var að liugsa um eitthvað annað. Og út af því fæddist að lokum vísa, ef vísu skyldi kalla. En hún verður mér alla ævi í minni vegna þess, livað eg var hæddur fyrir hana. Sjálfur var eg óskaplega hróðugur, þegar eg liafði komið lienni saman. Vísan var svo: Tóbaksjurtin mæla má, mundin lekur varla, höndin skekur, hristir þá, hæða tekur alla. Ekki var eg nú ánægður með efnið í henni, en annað var meira um vert, að eg hafði nærri þvi getað lialdið miðrími í henni. Og eg brann i skinn- inu að lofa öðrum að heyra, að eg væri orðinn skáld. Þegar eg kom heim um kvöldið, hitti eg vinnu- konuna fyrst. —- Eg get gert vísu, sagði eg. — Svo? sagði hún. — Já, eg gerði vísu í dag og hún er svona. Svo þuldi eg vísuna. —• Þetta er líklega góð vísa, sagði vinnukonan og helt leiðar sinnar. Ekki fannst mér hún sýna mikinn áhuga fyrir skáldskaparíþrótt minni, og sýna fremur litla dómgreind. Mamma var að koma úr sumarfjósinu frá því að mjalta kýrnar. Eg fór á móti henni og sagði að eg væri orðinn skáld. Hún setti niður mjólkurföturnar og sagði: — Jæja! Lofaðu mér að heyra! Eg þuldi vísuna með miklum áherzlum á mið- ríminu. En nú brá svo undarlega við, að mamma hneig niður á þúfu og veltist um sig í lilátri. Eg hafði alls ekki ætlazt til þess að vísan væri hlægi- leg, og þess vegna varð eg liálf hvumsa við. — Lofaðu mér að lieyra hana aftur, sagði mamma, og liún kom varla upp orði fyrir hlátri. Eg gerði það, og fór hægt og stillt með vísuna mína, sem mér þótti svo vænt um. Mannna hló enn, en þegar hún sá, að mér sárn- aði það, varð hún alvarleg. — Þetta er einkennileg vísa, sagði hún. Um livað er hún? Það stóð ofurlítið í mér. — Hún er um tóbaksjurtina, sagði eg svo. — Ójá, og að tóbaksjurtin kunni að tala. Held- urðu að það sé rétt? —- Það er skáldaleyfi, sagði eg. Eg hafði ein- hvern tíma heyrt talað um skáldaleyfi, í sambandi við það að bregða út af hinu alvanalega. — Við skulum þá segja að það sé skáldalevfi, mælti mamma. En hvert er þá efnið í liinum hluta visunnar, og hvaða samband er á milli þess og tóbaksjurtarinnar? Manima var svo glettnisleg á svipinn, að eg kaus að þegja. Eg var lieldur ekki viss í því sjálf- ur, hvert efni visunnar var. — Þetta er eintóm vitleysa frá upphafi til enda, sagði mamma. — Það er ekki vitglóra í vísunni þinni. Hún er verri en vísurnar hans Æra Tohba og Eríks Olsens. Blessaður láttu mig aldrei heyra svona vitleysu aftur, og segðu engum lifandi manni frá þessu. Eg var ekki hetjulegur eftir þessa ádrepu. Og eg var sár, því að mér fannst að mamma hefði ekki þurft að taka þetta svona óstinnt upp, allra sízt þar sem þetta var í fyrsta skipti, sem eg lof- aði henni að heyra vísu eftir mig. Hún sá, hvernig mér leið, og til þess að bæla úr sagði bún: — Annars ber þetta vott um, að þú hefir brag- eyra, en það er líka allt og sumt. Og kannske þú getir komið saman vísu, þegar þú ert orðinn stór. Eg vildi ekki liíða með það þangað til eg væri orðinn stór, og í einhverri þrjózku sagði eg: — Eg vil fara til Akureyrar í haust og læra hjá Matthíasi að yrkja í vetur. Eg vissi að Matthías var uppáhaldsskáld henn- ar. En nú skellti hún upp úr aftur. — Það, sem drengnum getur dottið í liug! Að læra að yrkja! Hefir nokkur lieyrt annað eins! Nei, drengur minn, það lærir enginn. Skáldskap- argáfan er náðargáfa, sem ekki er léð nema ein- staka manni. Hún er meðfædd, en verður ekki keypt með lærdómi. Svo greip hún mjólkurföturnar. — Það er kominn tími til þess fyrir þig að borða og liátta. Komdu heim með mér og hugs- aðu ekki meira um þetta. Eg lá lengi andvaka þessa nótt og mér leið ekki vel. Vonir mínar um að verða skáld voru að engu orðnar, og mér virtist framtiðin svört og ógnandi. Það var lítið varið í það að lifa úr þvi að fegursli draumurinn brást. Þunglyndur valcnaði eg um morguninn, og þunglyndur lagði eg af stað með ærnar, bókarlaus í þetta sinn. Og eg hafði aklrei framar ljóðabók með mér í lijásetunni. 137

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.