Æskan - 01.01.1969, Síða 10
NÝJA framhaldssagan. — Fylgizt með frá upphafi.
Villi ferðalangur er enskur drengur, sem ferð-
ast víða um heiminn og sér margt. Hann hefur
meðferðis sérstakan grænan farseðil, sem gerir
honum kleift að ferðast á landi, sjó og í lofti og
hann hefur fílinn sinn, Hannibal, með sér.
Það er mjög fróðlegt að fylgjast með ferða-
sögu þeirra, þvi þeir fara víða um og meðal
annars koma þeir til íslands.
Æskan mun á næstunni gefa lesendum sínum
tækifæri til þess að fyigjast með ferðum Villa
ferðalangs, og hefst frásögnin hér, þar sem
hann er staddur í S.-Ameríku.
■^illi ferðalangur og smáfíllinn Hannibal, vinur hans,
eru staddir í S.-Ameríku á ferð gegnum Perú. Við
strönd hins mikla stöðuvatns Titicaca, hátt uppi í And-
esfjöllum, hitta þeir dreng, sem heitir Bolivar og á
heima hinum megin við vatnið í Bólivíu.
Villi ferðalangur hafði verið gramur út í Hannibal,
vegna þess að hann hafði ýtt honum út úr bambus-
báti Bolivars með brölti sínu, út í kalt vatnið, en þegar
Bolivar spurði, hvort þeir vildu ekki koma með sér og
skoða tinnámur föður síns, lifnaði yfir Villa á ný og
þeir þáðu boðið.
Þeir sigidu yfir vatnið, sem er á landamærum Perú
og Bólivíu, og komu til smáþorps, sem heitir Guaqui.
Þaðan fóru þeir með járnbrautarlest til staðar skammt
frá tinnámunum.
Með loforði um góða máltíð tók Hannibal að sér
VILLI ferðalangur og fíllinn hans.
6