Æskan - 01.01.1969, Qupperneq 16
ÞÆTTIR úr sðgu okkar undursamlegu veraldar.
J hinum heita, þurra hluta veraldar
okkar, sem við nefnum mið-Aust-
urlönd, renna tvö stórfljót. Þau eru
kölluð Tigris og Eufrat, en milli
þeirra liggur víðáttumikill dalur. Á
hverju vori, þegar heitir sólargeisl-
arnir bræða snjóinn á fjarlægum
fjallatoppum, flytja fljótin tvö þetta
vatn í stríðum straumum til sjávar.
Fyrstu borgirnar.
Þessi steinstytta af súmerslcum manni er
nokkurra þúsunda ára gömul og sýnir að
hann hefir klæðzt sauðskinnspilsi, en nak-
inn að ofan og berfættur.
í þessum hluta heims byggðu menn fyrst i sam-
félagi. þannig að borgir mynduðust. Hringur-
inn I horninu er sýndur stækkaður til hægri.
Þegar stráumurinn fer í gegnum dal-
inn, flæðir það yfir árfarvegina út
um dalinn meðan straumurinn er
harðastur, þegar vatnið hverfur aftur
um leið og dregur úr flóðunum, skilur
það eftir sig leðju sem þornar upp
og er þá tilvalinn jarðvegur til þess
að sá korni í. Fyrir um það bil fimm
þúsund árum komu þarna hirðingja-
flokkar úr eyðimörkinni og ákváðu
að setjast að í dalnum, stunda þar
ræktun og búsetja sig þar til dvalar.
Og þarna byggjast upp fyrstu borgir
veraldar. Ein þeirra var kölluð Úr
og landið sjálft nefndist Súmer. Það
er sýnt á landakortinu, ásamt stór-
fljótunum Tigris og Eufrat, sem
renna saman út í Persaflóa (Persian
Gulf). Efst í hringnum sést Kaspía-
haf (Caspian Sea).
Á kortunum sem fylgja hér með
sjáið þið landið þar sem menn settust
fyrst að til fangdvalar og borgir
byggðust upp.
Landið var kallað Súmer, }rað var
gróðurríkur dalur milli stórfljótanna
Tigris og Eufrat og þjóðin sem tók
sér þar aðsetur var kölluð Súmerar.
Á hverju ári flæddu árnar yfir far-
vegi sína. Þær báru með sér jarðveg
ofan úr fjöllunum í vatnsstreyminu,
en þegar vatnið streymdi aftur burtu
til sjávar, varð jarðvegurinn eftir, þar
myndaðist jarðargróður og þar var
hægt að rækta korn og döðlupálma.
En Súmerarnir höfðu fleira sér til
viðurværis. í mýrlendinu við árfar-
vegina var hægt að veiða ógrynni af
Timburmót voru notuð til þess að setja
í þau jarðleir, sem þurrkaður var við sól-
arhita eða brennslu og síðan notaður
sem hellur við húsbyggingar.
12