Æskan - 01.01.1969, Side 41
Hvað viltu verða?
í síðasta þætti vorum við að tala um
þann mikla vanda, sem hverjum unglingi
er lagður á herðar, þegar að því kemur,
að hann þarf að iaka ákvörðun um íram-
tíð sína og lífsstarf. — í þessu sambandi
mundi hverjum þeim, sem stendur í spor-
um veljanþans, hollt að hafa i huga eftir-
farandi fjögur atriði:
1. Þekktu sjálfan þig og meðfædda hæfi-
leika þína.
2. Þekktu þá möguleika, sem opnar iðn-
greinar veita.
3. Leitaðu ráða og upplýsinga hjá þeim,
sem vel þekkja til.
4. Gerðu framtíðaráætlun.
Eins og við gátum um í síðasta þætti
viil Æskan gjarnan, að svo miklu leyti sem
hægt er,> verða þeim að liði, sem óska
eftir upplýsingum um iðngreinar og störf.
Verið ekkert feimin við að senda bréf og
látið fylgja greinilega utanáskrift ykkar,
en dulnefni má nota, ef þið viljið að bréfið
sé birt. — Nokkur bréf hafa þegar þorizt
og verða þau tekin eftir þeirri röð, sem
þau koma.
Fyrsta bréfið er frá stúlku í sveit. Hún
er 14 ára og segir I bréfinu, að hún hafi
mikinn áhuga á hljóðfæraleik og söngnámi.
Hér í Reykjavík er skóli, sem Tónlistar-
skóli heitir. Nemendur, sem æskja þar inn-
töku þurfa að hafa ofurlitla nasasjón af
Nemendur í söngkennaradeildinni fáókeyp-
is nám, það er að segja greiða ekki skóla-
gjöld. Nám þeirra tekur þrjá vetur og íer
sumt af því fram í kennaraskólanum. Eru
það námsgreinar eins og sálfræði, heilsu-
fræði o. fl. Að námi loknu fá þessir nem-
Tónlistarskóli.
hljóðfæraleik, vera kannski búnir að stunda
píanónám nokkra mánuði og þekkja dálítið
nótnalestur. Skólinn byrjar hvert haust 1.
október og endar síðasta maí, er 8 mánaða
skóli. — Skólagjald í hinni almennu byrj-
endadeild skólans er kr. 6 000.00 — sex
þúsund kr., en kr. 7 000.00 í framhalds-
deild. Tími sá, sem nemendur þurfa til þess
að Ijúka prófi frá skólanum er mismunandi
langur og fer hann eftir því, hve vel nem-
anda sækist námið. Skólinn sjálfur segir til
um það, hvenær nemendum henti að þreyta
prófin. — Venjulega tekur nám í 'leik á
blásturshljóðfæri styttri tíma en t. d. nám
á píanó.
I söngkennaradeild skólans þurfa vænt-
anlegir nemendur að þreyta inntökupróf og
ekki eru teknir yngri nemendur en 18 ára.
endur rétt til að kenna söng í barna- og
unglingaskólum og taka þá laun samkvæmt
16.—17. launaflokki. Eitthvað mun kennslu-
'skylda þeirra vera styttri, en venjulegra
kennara, þ. e. a. s. færri kennslustundir
á viku. Geta má þess að Tónlistarskólinn
er tii húsa í Skipholti 33 Reykjavík og
síminn þar er 30625. Svo eru vitanlega
til fleiri tónlistarskólar, t. d. mun einn vera
á Akureyri og einn er til í Kópavogi, starf-
andi í Félagsheimilinu þar og sjálfsagt
eru þeir fleiri til á iandi hér.
Það er reynslan í tónlistarnámi, að all-
flestir, sem stunda það af alúð, komast
nokkuð til þroska á þessu sviði. En til þess
að verða góður hljóðfæraleikari eða söngv-
ari þurfa helzt góðir meðfæddir hæfileikar
að koma til.
OMMU hljómsveitin.
Það er ekki vitað hver átti hugmyndina eða hvernig það byrjaði,
en að veruleika varð það, hve vitlaust sem flestum fannst það í
byrjun. 40 japanskar konur stofnuðu hljómsveit, þar sem þær
yngstu voru 64 ára, og sú elzta 86 ára. Sem sagt meðalaldur
kvennanna var 76 ár og engin þeirra hafði áður spilað á hljóðfæri
eða þekkt nótur! Þetta tók nú allt sinn tíma, en það segir sig
sjálft, að gömlu konurnar hafa verið töluvert músíkalskar! Nú
hefur hljómsveitin ferðast um Japan og haldið hljómleika, og alls
staðar gert mikla lukku. Þangað til núna hefur einkennisbúningur
þeirra verið hvítir sokkar, en nú er farið að safnast í sjóð hjá þeim
þvl hljómleikarnir hafa verið vel.sóttir og nú vilja gömlu konurnar
endilega fá sér einkennisbúninga.