Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1969, Page 43

Æskan - 01.01.1969, Page 43
 am&bú&ir. J litlun^ bæ í Wales á Englandi eru barnabúðir, sem 35 ára gamall enskur ljósmyndasmiður, Chris Davis, hefur stofnað fyrir börn af mismun- andi litarhætti, og hann hefur gert þetta að sínu lífsstarfi. Áhugi hans á þessu starfi vaknaði við það, að ár- ið 1949 var hann fenginn til að stjórna barnabúðum fyrir Sameinuðu þjóðirnar, 40 börnum frá mörgum löndum af mismunandi kynþáttum og trú var safnað saman í þessurn búðum. Hugmyndin með þessu var að komast að niðurstöðu um, hvort kyn- þáttafordómar væru meðfæddir eða afleiðing af uppeldi barnanna. Chris Davis segir: ,,Það kom fljótt í Ijós, að börnunum var ekki með- fædd nein andúð á börnum, sem voru af öðrum litarhætti eða kyn- þætti. Börnin urðu mjög fljótt vinir, þau léku sér og unnu saman án þess að hugsa hið minnsta um það, hvort þau voru livít, gul eða svört.“ Búðirnar urðu þessu málefni stór- sigur, og það var ákveðið að sams konar sumarbúðir skyldu starfræktar livert sumar í Wales. Chris Davis var búðastjóri til ársins 1955, en þá var þeim því miður lokað vegna ljár- skorts. Þá ákvað Davis að opna sínar eigin Málaratíminn er mjög vinsæll. búðir. Hann segir: „Þetta sex ára starf meðal barnanna hal'ði kennt mér margt, og mér fannst þetta starf yrði að halda áfram, þó að í minni mæli væri, því ég gat því miður ekki haft eins mörg börn og ég vildi, því ég kosta þetta sjálfur að öllu leyti.“ Máltíð í barnabúðunum. Chris Davis er þekktur barnaljós- myndari og hefur ferðazt um heim- inn og tekið myndir al börnum og á nú eitthvert stærsta barnamyndasafn, sem til er, eða um 15.000 myndir. Chris Davis og nokkur börn hans. Þannig helur hann komizt í sam- band við börnin, sem hann býður til sín til dvalar í búðunum, og með myndatökunum aflar liann sér fjár til að starfrækja búðirnar. Chris Davis starfar vissan hluta ársins á hinu stóra lúxusfarþegaskipi „Kungsholm", og fleiri skipum, og Allir eru beztu vinir, og þannig á það að vera, hvort sem þau eru hvít, gul eð'a svört. hefur góðar tekjur af því að mynda farþega skipanna. En aðaláhugamál hans eru börnin og ljósmyndun þeirra. Þegar þetta er skrifað, er Chris Davis að leita að útgefanda bók- ar, sem hann ætlar að gera með mynd- um af börnum allra kynþátta, sent á að heita „Börn heimsins". Því nal'ni kallar hann sýningu, sem hann held- ur alltaf í skipunum, þegar hann starfar þar, og vonandi tekst honum að gefa út bók sína og afla þess fjár- magns, sem hann þarf til að halda þessari góðu og mannbætandi starf- semi sinni áfram. L. M. I>að er góð leikstofa í búðunum. 39

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.