Æskan - 01.03.1969, Side 25
línginn var óhultur í nálægð hans, og ungar og apynjur
flýðu hver sem betur gat. Jafnvel karlaparnir forðuðu
sér frá óargadýrinu, og voru á svipstundu horfnir inn
í laufþykkni frumskógarins.
Þá var það, að Tarzan sá Kölu fóstru sína á hröðum
flótta undan Tublat, og barst leikurinn að trénu, þar
sem hann sat á grein. Tarzan sá Kölu taka örvæntingar-
fullt stökk upp í grein. Mundi hún ná? Já, henni heppn-
aðist stökkið, en allt í einu kvað við brestur, og greinin
þverbrotnaði undan þunga apynjunnar. Svo nærri var
Tublat kominn, að Kala datt á liann ofan, svo að bæði
féllu um koll. Þau voru fljót að brölta á fætur, og þarna
stóðu þau hálfbogin, hvort andspænis öðru, Tublat og
Kala kona hans. Þau studdu handarbökunum á jörðina
og urruðu illilega hvort að öðru, en Tarzan, sem sat á
greininni fyrir ofan þau, réð það af reiðiöskrum karl-
apans, að hann mundi í engu þyrma Kölu fóstru hans.
Eins og hendi væri veifað stökk Tarzan niður á milli
villidýranna tveggja og hafði hnífinn sinn góða í hægri
hendi. Þetta þótti Tublat ágætt, nú skyldi hann sýna
þessum hvíta apaketti í tvo heimana. En Tarzan var fljót-
ari að hugsa, og áður en loðnar krumlur apans náðu
að umlykja hann, hafði hann lagt hnífi sínum mörgum
sinnum í brjóst þessa aparisa, sem nú féll stynjandi til
jarðar og lá síðan grafkyrr.
Þau Tarzan og Kala horfðust smástund í augu yfir
dauðan apann og það mátti lesa stolt úr augum Kölu,
þegar hinn ungi fóstursonur hennar sté fæti sínum á
háls mannapans, horfði í tunglið og rak upp siguróp
flokksins.
Aparnir tíndust fljótlega niður i'ir trjánum og voru
furðu lostnir yfir því, að Tublat, einn mesti bardaga-
apinn, var nú dauður.
«Ég, Tarzan, er mikill drápari. Þið skulið ekki ráðast
Rudyard
Kipling
Kipling.
Rudyard Kipling fæddist í borginni Bombay á
Indlandi 30. des. 1865. Að endaðri skólagöngu i
Englandi sneri hann aftur til Indlands, þá rúmlega
tvítugur að aldri. Hann gerðist blaðamaður og ferðað-
ist þá um mestan hluta Indiands. Á þessum árum er
hann var blaðamaður skrifaði hann margar af sínum
beztu sögum. En af öllu því, sem hann skrifaði, eru
Frumskógabækurnar hans tvær mest þýddar og lesn-
ar í heiminum. Þessar bækur urðu til á árunum
1894—96. Árið 1891 ferðaðist Kipling um Japan,
Kina og Ameríku. Eftir þau ferðalög kom út fyrsta
stóra skáidsagan hans. Nokkrar bækur Kiplings hafa
verið þýddar á islenzku. Kipling fékk Nóbelsverð-
launin árið 1907, og var hann fyrsti Englendingur,
sem hlaut þann heiður, þá var hann búsettur í Eng-
landi, en þar bjó hann til dauðadags 18. janúar 1936.
Sjá grein á bls. 131 um teiknikvikmynd Disneys.
á mig eða fóstru mína, Kölu. Sjáið, hvernig fór fyrir
Tublat,“ þrumaði Tarzan.
Næsti kafli: ÞRUMUVEÐRIÐ
Jólagetraunir
Verðlaunaþrautir þœr, sem ÆSKAN
bauð lesendum sinum í síSasta jólablaði,
b‘>fa orðið mjög vinsælar.
Hvar aiga þeir heima?
bessi nöfn komu upp: Inga Dóra Kon-
ráðsdóttir, Haukagili, Vatnsdal, Austur-
Húnavatnssýslu; Karl Geir Árnason,
Heimalundi, Stöðvarfirði; og Björn Á.
' á'lsson, Smáragrund, Jökuldal, Norður-
Múlasýslu.
AIIs bárust 34G7 lausnir á þessari j»raut.
Hve marga þekkir þú?
Þessi nöfn komu upp: Þóra Melsted,
Ásgarði 1, Reykjavík; Ingveldur Karls-
dóttir, Gerðalióli, Álftanesi, Bessastaða-
lireppi; Karen Rögnvaldsdóttir, Aðalstr.
1, Þingeyri; Snæbjörn Einarsson, Garði,
Raufarhöfn; og Lilja Skarphéðinsdóttir,
Ægisgötu 12, Akureyri.
Alls bárust 1379 lausnir á þessari þraut.
Verðlaunagetraun.
Þessi nöfn komu upp: Ásgerður Pálma-
dóttir, Bergsstöðum, Vatnsnesi, Vestur-
Húnavatnss.; Kristján Einarsson, Vestur-
götu 162, Akranesi; og Helga Jóhannes-
dóttir, \tri-Tungu, Tjörnesi, Suður-Þing-
eyjarsýslu.
Alls bárust 2394 lausnir á þessari þraut.
Myndin sýnir, hvar hlutirnir voru í verð-
launaþraut ÆSKUNNAR.
141