Æskan - 01.02.1972, Blaðsíða 46
Ljósm.: N. N.
Ljósm.: N. N.
NR. 80 TF-KBA
ERCOUPE 415
Skráð hér 16. júní 1954 sem TF-KBA, eign Benedikts Sigurðs-
sonar o. fi. Flugvélin var keypt í Bandaríkjunum (N 87425) og
ætluð hér til einkaflugs.
Hún var smíðuð i marz 1946 hjá Engineering and Research
Corporation, Riverdale, Maryland. Raðnúmer: 598.
31. janúar 1957 keypti Árni Sigurbergsson flugvélina af Bene-
dikt og Sigurði Ágústssyni.
26. marz 1957 hlekktist henni verulega á í iendingu á Reykja-
víkurflugvelli, en hún var gerð flughæf að nýju.
21. júní 1961 keyptu þeir Bárður Danielsson og Björn Svein-
björnsson flugvélina af Árna og Sigurði Hauki Sigurðssyni.
i maí 1964 áttu þau Kristjana B. Mooney og Kristján Mikaels-
son flugvólina.
14. júlí 1965 keypti Þorsteinn Sigurgeirsson hlut Kristjönu.
ERCO 415-C ERCOUPE: Hreyflar: Einn 75 ha. Continental C-75-12.
Vænghaf: 9.14 m. Lengd: 6.32 m. Hæð: 1.80 m. Vængflötur: 13.20
nrp. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 385 kg. Hámarksflug-
taksþyngd: 573 kg. Arðfarmur: 47 kg. Farflughraði: 160 km/t.
Hámarkshraði: 228 km/t. Flugdrægi: 800 km. Hámarksflughæð:
4.700 m. 1. flug: 1937.
NR. 81 TF-EHA
ERCOUPE
Skráð hér 12. júni 1954 sem TF-EHA, eign Steindórs Hjaltalín
o. fl. Flugvélin var keypt frá Bandaríkjunum (N 99482) og ætluð
hér til einkaflugs.
Hún var smíðuð í júni 1946 hjá Engineering and Research
Corporation, Riverdale, Maryland. Raðnúmer: 2105.
Á tímabilinu áttu ýmsir hlut í flugvélinni, s. s. Gunndór Sigurðs-
son, Garðar Steinarsson, Þórður J. Úlfarsson, Björn Brekkan,
Karl G. Karlsson. Hinn 3. ágúst 1961 eiga þeir flugvélina einir,
Karl G. Karlsson og Garðar Steinarsson.
28. apríl 1964 eru þessir skráðir eigendur: Kristján Friðjónsson,
Haraldur Tyrfingsson, Bragi Ingólfsson og Davíð Ólafsson, en
síðar keypti Stefán Jónsson part Kristjáns.
ERCO 415-C ERCOUPE: Hreyflar: Einn 85 ha. Continental C-85-
12F. Vænghaf: 9.14 m. Lengd: 6.32 m. Hæð: 1.80 m. Vængflötur:
13.20 m:. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 349 kg. Há-
marksflugtaksþyngd: 573 kg. Arðfarmur: 88 kg. Farflughraði: 170
km/t. Hámarkshraði: 228 km/t. Flugdrægi: 800 km. Hámarksflug-
hæð: 4.700 m. 1. flug: 1937.
Arngrímur Sigurðsson
og Skúli J. Sigurðsson skrifa um
Islenzkar flugvélar
44