Æskan - 01.02.1972, Blaðsíða 17
Á æfingu i skólanum.
^ega óhlutdræg, eins og dómendur í iþróttamótum. En það
getur veriS mjög erfitt, þegar hæfileikarnir — þótt i litlum
mæli sé — fara að koma í Ijós.
fyrstu æfingar
I eyrum leikmanns hljóma ballettorð eins og galdraþula,
en krakkarnir grípa þau á lofti. Hreyfingarnar eru enn
fremur einfaldar, enda eru nemendur aðeins að taka fyrstu
skrefin I listdansinum. En kennarinn krefst fullkominnar
framkvæmdar hvers einasta atriðis, því að grundvöllur dans-
tækninnar er einmitt lagður frá fyrstu byrjun.
Eftir ballettæfingarnar er kennsla í almennu námsgrein-
unum — stærðfræði, líffræði, rússnesku og eðlisfræði.
Námsdagurinn í þessum skóla er mun lengri en í venjuleg-
um skólum. Námið hefst klukkan níu að morgni og skóla-
deginum er ekki lokið fyrr en kl. sex að kveldi. En að
sjálfsögðu er gert ráð fyrir hvildartíma og matarhléum í
stundaskránni.
í heimavist skólans búa um þrjú hundruð börn — bæði
þau, sem hingað eru komin úr öðrum borgum, og Moskvu-
búar, sem búa mjög langt frá skólanum. Við hlið heima-
vistarinnar er stórt bókasafn og stofur fyrir tónlistarkennslu,
en hún er hér jafn nauðsynleg námsgrein og listdansinn
sjálfur.
15