Æskan - 01.02.1972, Blaðsíða 54
Enda þótt þú kannist vel við Legokubbana. er ekki vist að þú vitir, hvað Legoland er. Legoland? Ja. kannski áttu þitt eigið Legoland
svipað og sést hér á myndinni fyrir ofan.
En hið raunverulega Legoland er i Danmörku. i bænum Billund á Jótlandi. þar sem Lego-verksmiðjurnar eru. Þar er búið að skapa
slikan ævintýraheim úr tómum Legokubbum. að enginn staður i Danmörku. nema sjálft Tivoli, dregur nú til sin fleiri ferðamenn á ári
hverju. Og börnin, sem vinna 1. verðlaun. missa ekki heldur af Tivoli. Þau heimsækja þann fræga og fagra skemmtigarð áður en þau
fljúga aftur heim með Flugfélagi íslands.
GETRAUN
FLUCFÉLAC
ÍSLANDS
REYKJALUNDUR
am
ÆSKAN
Eins og lesendum Æskunnar er kunnugt hefur blaðið
í samvinnu við Flugfélag islands efnt til verðlauna-
samkeppni undanfarin 12 ár, og á hverju ári hafa
heppnir vinnendur farið ævintýraferðir til útlanda með
Flugfélaginu. Nú efna Flugfélag islands, Reykjalundur,
Æskan og Lego-verksmiðjurnar til verðlaunasam-
keppni, þar sem fyrstu verðlaun verða ferð til Dan-
merkur og heimsókn og dvöl i Legolandi fyrir tvö
börn. Auk þess mörg aukaverðlaun. Flogið verður til
Kaupmannahafnar með þotu Flugfélags íslands og frá
Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn með einkaþotu
Lego-verksmiðjanna. i Legolandi dvelja börnin oQ
fylgdarlið þeirra i 2—3 daga. Að þvi loknu fljúga börn-
in til Kaupmannahafnar og fara m. a. í Tivolí. Ritstjóri
Æskunnar og blaðafulltrúi Flugfélags islands munu
fylgja börnunum i þessari ævintýraferð.
FRESTURINN TIL AÐ SKILA BÁÐUM SEÐLUNUM ER TIL 15. MARZ
52