Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1973, Síða 34

Æskan - 01.11.1973, Síða 34
|p *n LrfigÆmwfi . mm Ýmislegt um dýrin |Um ykkar eru náttúrlega farin a5 læra náttúrufræði og vitið þá sitt af hverju um dýrin lika. Nú ætla ég í dag að segja ykkur ýmislegt smá- vegls um dýrln, sem ekki er vist, að þið hafið lesið áður. Og þó þið hafið lesið það einhvern tima, þá er ekki að vita nema þið séuð búin að gleyma þvi. Það rifjast þá upp fyrir ykkur. Þegar við förum að hvila okkur eftir dagsins erfiði, förum við úr fötunum og leggjum okkur upp I rúm. Og þvi betra sem rúmið er þvi betur sofum við og þvi óþreyttari erum við, þegar við vökn- um aftur á morgnana. En nú vitið þið, að dýrin eiga engin rúm, og háttað geta þau ekkl, vegna þess að fötin þeirra eru föst við þau. Þau sofa í fötunum elns og við gerum, þegar við gistum í hlöðu eða á svo- leiðis stað. Því þið megið ekki halda, að dýrin sofi ekki. Þau eru alveg eins og við að þvl leyti: Þau verða að fá að sofa til þess að geta lifað. En þau sofa ekki eins fast og við og þau sofa varla eins lengi. — Hérna á efstu myndinni sjáið þið, hvernig nokkur dýr sofa. Fíllinn hallar sér standandi upp að trjástofni og sefur standandi á öllum fjórum fótunum. En hann er fljótur að vakna, ef hávaði er nærri, þvi hann hef- ur stór eyru og heyrir vel. Dræminginn klifrar upp ( tré, henglr sig á fótunum neðan ( greln og sefur elns og steinn. Hvalurlnn leggst niður á sjávarbotn, þegar hann vill sofa. En hann sefur aldrei mjög lengi i einu, þvl hann þarf alltaf að koma upp úr sjónum við og við til þess að anda. Hundurlnn, kunningl okkar, hrlngar sig, þegar hann leggst til svefns. Hann gerir það til þess að halda betur á sér hita. Stundum, þegar honum finnst of heitt, liggur hann þó endllangur. Hvert dýr sefur með sfnu móti. — Marabústorkurinn hefur sömu aðferðina og flestir vaðfuglar: hann stendur á öðrum fætl, þegar hann sefur. |jg| ^fBl! WíÆ /r>\ jrv Hænan sezt upp á skaftið sitt og kúr- ir þar steinsofandl, þangað til haninn galar á morgnana og vekur hana. Broddgölturinn sefur hér og hvar eft- ir þvl hvernig á stendur. En áður en hann sofnar, dregur hann sig f kuðung. svo að ekkert sést nema broddarnlr. Og þá er hann ekki árennilegur. Leðurblakan sefur í skritnum stelling- um. Hún gripur með klónum um grein og sefur hangandi eins og dræmingl °9 lætur hausinn lafa. Öll dýr sofa svo laust, að þau hrökkva upp undir eins og einhver hætta nálgast. Og hvemig haldið þið að standi á þvl? Það stafar ýmist af þvi, að þau heyra miklu betur en nokkur maður, eða þá af þvl að þau finna f langri fjarlaegð lyktina af óvinum slnum, jafnvel þó að þau sofi. MORGUNBLAÐSI 32

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.