Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 5

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 5
Far þú hlngaB tll mfn. Hallgerður mælti: „Ekki fer ég að þvf, þó að þú hafir svelt þig til fjár og faðir þinn.“ Þá reiddist Þorvaldur og laust hana í andlitið, svo að blæddi, og gekk síðan braut og kvaddi húskarla sfna með sér, og hrundu þeir fram skútu og hlupu Þar á átta karlar og reru út ( Bjarneyjar. Tók hann Þar skreið sfna og mjöl. Nú er að segja frá Hallgerði, að hún sat úti og var skapþungt. Þjóstólfur gekk að og sá, að hún var særð f and- litinu og mælti: „Hvf ert þú svo illa leikin?" ..Þorvaldur veldur þvf, búandi minn,“ sagði hún, "Og stóðst þú mér þá fjarri, ef þér þætti nokkuð undir um mig.“ ..Ég vissi eigi,“ segir hann, „en þó skal ég þessa hefna.“ Síðan gekk hann á braut og til fjöru og hratt fram skipi sexæru og hafði í hendi öxi mikla, er hann átti, vafinskeftu. Hann stfgur á skip og rær út f Bjarn- eyjar. Og er hann kom þar, voru allir menn rónir, nema Þorvaldur og förunautar hans. Hann var að hlaða skútuna, en þeir báru á út, menn hans. Þjóstólfur kom að ( þvf og hljóp upp á skútuna og hlóð með honum og mælti: „Bæði ert þú að þessu htilvirkur og óhagvirkur." Þorvaldur mælti: „Hyggst þú munu betur gera?“ ..Það eitt munum við að hafast, að ég mun betur ðera en þú,“ segir Þjóstólfur, „og er sú kona illa gift, er þú átt, og skyldi ykkar samfarir skammar vera.“ Þorvaldur þreif upp handsax eitt, er var hjá hon- um, og leggur til Þjóstólfs. Þjóstólfur hafði öxina á öxl sér og laust á móti, og kom á hönd Þorvaldi, og brotnaði handleggurinn, en saxið féll niður. Sfðan færði Þjóstólfur upp öxina f annað sinn og hjó f höfuð Þorvaldi, og hafði hann þegar bana. Glúmur fær Hallgerðar. Bræður þrír eru nefndir til sögunnar. Hét einn Þór- arinn, annar Ragi, þriðji Glúmur. Þeir voru synir Óleifs Hjalta. Þelr voru virðingamenn miklir og vel auðugir að fé. Þórarinn átti það kenningarnafn, að hann var kallaður Ragabróðir. Hann hafði lögsögu eftir Hrafn Hængsson. Hann var stórvitur maður. Hann bjó að Varmalæk, og áttu þeir Glúmur bú sam- an. Glúmur hafði verið lengi f förum. Hann var mikill maður vexti og sterkur og frfður sýnum. Ragi var vfgamaður mikill, bróðir þeirra. Þeir bræður áttu suð- ur Engey og Laugarnes. Þeir bræður töluðu, Glúmur og Þórarinn, og spurði Þórarinn Glúm, hvort hann ætlaði utan, sem hann var vanur. Hann svaraði: „Hitt hafði ég nú heldur ætlað, að hætta kaupferðum." „Hvað er þér þá f skapi?“ segir Þórarinn. „Vilt þú blðja þér konu?“

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.