Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1975, Side 9

Æskan - 01.04.1975, Side 9
pétur tók þá upp gripi sína og fór að skoða þá. Leit hann þá í spegilinn og sagði: „Það vildi ég að ég sæi nú hvert ég á að fara.“ Birtist þá í speglinum rr>ynd af stórri og fallegri konungshöll. Breiddi hann Þá út teppið, settist á það og nefndi konungshöllina. Öðara lyftist teppið upp, og sveif óðfluga gegnum l°ftið, uns það staðnæmdist fyrir framan konungs- höllina. Gekk Pétur inn og spurði, hvort hann gæti fengið nokkra atvinnu. Var honum þá fenginn sá starfi að gæta nautgripa konungsins. Ekki hafði hann hátt kaup, aðeins nokkra eirskildinga um mánuðinn. Pn hann breytti þeim í gullpeninga með stafnum sín- Urnum, og sendi móður sinni alltaf helminginn. Pannig liðu nokkur ár og varð Pétur vel þokkaður af öllum fyrir hjálpsemi sína og gott viðmót. Fékk hann seinna stöðu sem þjónn í höllinni, og þótti hon- Ufn það vegsauki, því að konungurinn þótti vandur á verkafólk sitt. Konungurinn átti dóttur eina, forkunnar fagra. Var hún á sama aldri og Pétur. Hafði hún þá þegar feng- '3 marga biðla, en allir höfðu þeir fengið afsvar. Svo bar við eitt sinn, þá er konungsdóttir var 18 vetra, að fólk sá hóp af stórum fuglum koma fljúgandi í f arska. Þegar þeir komu nær, sáu menn að þetta voru ekki fuglar, heldur stórir vængjaðir hestar, og sat maður á hverjum. Staðnæmdust þeir fyrir framan höllina og stigu mennirnir þar af baki og gengu inn. Voru þeir miklir vexti, og voru höfuð þeirra alveg hnöttótt og fullt eins stór og skrokkurinn: Voru þeir °9 heiðgulir á hörund. Var einn þeirra mestur vexti, °9 hafði hann kórónu mikla á höfðinu. Sá gekk fyrir konung og mælti: „Ég er Teitur konungur í tunglinu, °g er hingað kominn ásamt 12 ráðgjöfum mínum til Þess að biðja dóttur þinnar, og þykist ég vita, að þú ^unir ekki hafna svo göfugu gjaforði." Konungur varð vandræðalegur og kvað dóttur sína skyldu ráða því. Var nú kailað á meyna, og er hún heyrði hvað um var að vera, þvertók hún með öllu fyrir þann ráðahag. Varð Teitur hinn reiðasti, og sagði að þau skyldu hittast seinna, og þá skyldi hún Slá, hver ráðin hefði. Hélt hann síðan á braut með fylgdarmönnum sínum. Svo bar til eitt sinn nokkru seinna, að konungs- öóttir var á skemmtigöngu í aldingarði sínum ásamt Þirðmey sinni. Kólnaði þá í veðri, og bað hún þern- una að skreppa inn og sækja yfirhöfn hennar. Hún Þl'óp inn, en er hún kom aftur var konungsdóttir Þorfin. Var hennar leitað víða, en árangurslaust. Lét konungur þá það boð út ganga, að hver sá sem fyndi Þana, skyldi fá hana fyrir konu, og konungsríkið eftir sinn dag. Margir göfugir riddarar fóru að leita henn- ar> en ailt kom fyrir ekki. Mundi þá Pétur eftir spegl- 'num, tók hann upp og leit í hann og óskaði að hann sæi þann stað sem konungsdóttirin væri geymd á. Kom þá ( Ijós mynd af tunglinu. Pétur tók þá teppið, Hvar er hættulegi ræninginn, sem han- inn er aS verja hænurnar sinar fyrir? V------------------------------------------------- settist á það og nefndi tunglið. Tókst teppið þá á loft, og staðnæmdist ekki fyrr en inni í höll tunglkon- ungsins. Sat konungsdóttir þar grátandi f stórum sal, og var klædd í dýrlegan brúðkaupsskrúða. Varð hún bæði hissa og afar fegin, þegar Pétur kom. Sagði hún, að þegar hirðmeyian hefði farið inn, hefði hún ekki vitað fyrri til en Teitur hefði komið á vængja- hesti. Hafði hann gripið sig og flogið með sig upp í tunglið. Ætti brúðkaup þeirra að fara fram eftir eina klukkustund, og bráðum mundi Teitur koma að sækja hana. í þessu var hurðinni hrundið upp, og inn kom Teit- ur konungur. Þegar hann sá Pétur varð hann æfur af reiði, og æpti: „Hver ert þú, hinn armi þræll, sem gerist ‘svo djarfur að brjótast inn í herbergi unnustu minnar? Þeirrar svívirðingar skal hefnt verða.“ Að svo mæltu réðist hann á móti Pétri með brugðið sverð. Konungsdóttir hljóðaði upp af hræðslu, og hélt að nú væri öll von úti. En Pétur tók upp stafinn sinn, og sló í Teit og sagði: „Hókus, Pókus“. Stirðn- aði Teitur þá upp og varð að gullkarli, og stendur hann enn í sömu sporum. Síðan hefur tunglið gulls- lit. En Pétur og konungsdóttir settust á teppið og flugu aftur ofan á jörðina. Urðu allir fegnir komu þeirra, og eftir nokkurn tíma héldu þau brúðkaup sitt með mikilli dýrð. Nokkru seinna hætti gamli konung- urinn stjórnarstörfum, og fékk völdin í hendur Pétri tengdasyni sínum, og gerðist hann dugandi konung- ur og var elskaður af öllum þegnum sínum. Lét hann þá senda eftir móður sinni, og átti hún góða daga það sem eftir var ævinnar. Hjónaband Péturs og kon- ungsdóttur varð hið farsælasta og áttu þau börn og buru, og lýkur svo sögunni. MUNIÐ: GJALDDAGI BLAÐSINS VAR 1. APRÍL S.L.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.