Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1975, Síða 26

Æskan - 01.04.1975, Síða 26
wmnauammmn auðkindin hefur verið förunautur mannsins á öllum öldum, sem sögur fara af, og það hef- ur hún eflaust verið margar aldir aftur ( hinni myrku fortíð, áður en öld hinnar rituðu mannkynssögu hófst. Hennar getur á fyrstu síðum Biblíunnar. Abel, næst- elsti sonur Adams og Evu, var sauðamaður. Ufl og kjöt, skinn og mjólk kindarinnar hefur snemma komið mönnum í góðar þarfir. Endur fyrir löngu hafði kindin vanist alls konar loftslagi, bæði mjög heitu og mjög köldu. Kindin er líka auðtamin og skapgóð. Maðurinn hef- ur svo lengi hugsað fyrir lífi hennar, að hún er hætt að geta það sjálf. Varla þykir verða lengra jafnað en til sauðarins um heimsku og meinleysi, samanber lýs- ingarorðin sauðheimskur og sauðgæfur. Villtum kindum, sem til eru í ýmsum löndum, er annan veg farið. Þær eru skyggnar vel og fljótar að verða varar hættunnar og flýja hana. En geti þær ekki flúið, skipta hrútarnir sér í fylkingarbrjóst og verja sig og fjölskyldu sína afburða vel. Á sléttunum í Vesturheimi hefur það borið við, að hrút og nauti hefur lent saman og þrátt fyrir stærðar- muninn veitir hrútnum betifr. Flest, sem hann rennir sér á, verður undan að láta. Hjá tömdu hrútunum eldir talsvert eftir af hetjumóði villtu forfeðranna. Langbest nýtur kindin sín frjáls í víðáttumiklu fjaillendi. Þannig hefur heimkynni hennar verið upprunalega. Sjálfsagt hefur það verið sumardvölin á afréttunum, sem bætt hefur kindinni svo upp vetrarkulið í dimmu og loft- leysi, að hún hefur haldið kostum sínum, þrátt fyrir öll harðindi og horfelli og hraklega meðferð á liðnum öldum. 24

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.