Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 43
UMFER-ÐARFRÆ-ÐSLA
ÞAÐ MÁ EKKÍ
HLAUPA ÚT
. Á MILLl 6ÍLA / 1
athugull, áræðinn, en þó varkár. Hann
þarf oft að vinna hratt, en þó fum-
laust og hann þarf helst að vekia
traust allra, sem til hans kunna að
leita.
Störf lögregluþjóna skiptast oft í
ýmsar deildir. Má þar til nefna vega-
löggæsludeild, rannsóknarlögreglu-
deild, umferðardeild o. fl. — Ýmsir
lögreglumenn komast, er fram líða
stundir, í yfirmannastöður, svo sem
flokksstjóra- og varðstjórastöður.
SILFURMÁVUR
Fagur fugl, finnst ykkur ekki. Þessi fugl má segja
aS sé fastur fylgifugl skipa yfir hafið. Aðal heimkynni
hans eru strendur Evrópu. Hér á landi verpir hann
helst á suðurströndinni og á Austfjörðum. Hann verpir
helst í sinu á sandströndum. Eggin eru 2—3. Hjónin
skiptast á að liggja á eggjunum. Þegar þau mata
unga sína, gefa foreldrarnir frá sér einkennilegt unga-
Mjóð. Silfurmávurinn hefur rauðan blett fremst á neðri
9oggi. Þessi rauði blettur verkar á taugaboð hjá ung-
unum, svo að þeir taka áfjáðari við fæðunni, sem
faðir og móðir flytja þeim. — Hér á myndinni er silfur-
mávurinn að búa sig undir að afla fæðu fyrir barna-
heimili sitt.
HHHBHBI