Æskan - 01.03.1982, Page 29
U\ónguri
6/2/2 O
'3
j-átœíza líúU
an
21. Nú skeði það að konungsskrifari varð að
fara í ferð einmitt til þeirrar borgar þar sem
hann hafði verið kóngur áður. — Hestasveinn
hans átti að aka honum þangað. Þessi ferð var
farin að sumarlagi og gekk greitt.
23. Hirðfólkið og hofmeistarinn þekktu ekki
fyrrverandi kóng sinn, sem var dulbúinn sem
skrifari og var honum svo vísað til svefns í
hlöðunni því að margir gestir voru staddir
þennan dag í höllinni. — Allir sváfu vel um
nóttina.
22. Á leiðinni sagði skrifarinn hestasveini sín-
um frá því, að nú ætlaði hann aó vita um hvort
drottningin kona hans væri þar ennþá, því að
hann sagðist alltaf þrá, að fá að hitta hana aftur
og helst fá að vita sannleikann um það, hvort
hún hafi verið honum ótrú meðan hann var í
stríðinu.
24. Morguninn eftir fylgdi hofmeistarinn
skrifaranum um höllina og sagði söguna af
konungshjónunum sem höföu búið þarna fyrir
stríðið. Hofmeistarann grunaði ekki að maður-
inn, sem var þarna gestkomandi, var einmitt
kóngurinn.
Skemmtileg myndasaga í litum