Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1982, Blaðsíða 8

Æskan - 01.04.1982, Blaðsíða 8
hún fórfram hjá. Hún beið lengra uppi í stiganum, þangað til hún heyrði að dyrunum var lokað og konan gekk niður tröppurnar og hjólaði hratt heim á leið. Hann heldur áreiðanlega, aö þetta sér bara gabb,“ sagði Berta við þau hin, þar sem þau lágu í leyni og höfðu auga með húsi skólastjórans. ,,Nei, hann kemur ekki,“ sagði Ingvar. ,,Viö erum búin að gefa hon- um 15 mínútur í viðbót. Þið vitið, hvað við eigum að gera." Hin kinkuðu kolli og ekki löngu seinna var bréfi stungið í póstkassa skólastjórans. Næsta dag gerðist ekkert og ekki heldur daginn þar á eftir. En allir nemendurtöluðu um hve ómerkilegur sá væri, sem færi svona með hjólin. Einn nemendanna hafði orðið að leiða hjólið sitt heim. Loftinu hafði ekki bara verió hleypt úr, heldur voru ventlarnir horfnir, svo að hann varð að kaupa nýja. Leyniflokkurinn hafði safnast sam- an heima hjá Ingvari. ,,Nú verðum við að taka harðar á hlutunum,;' sagði Ingvar. ,,Hann heldur, að þetta sé bara gabb og skólastjórinn ætlar sennilega að sjá til, eins og fullorðna fólkiö segir. ,,En nú ætti hann þó að gera eitt- hvað," sagði Berta. ,,Já, sérstaklega eftir þetta með Eirík og ventlana, sem hurfu af hjólinu hans." ,,Ég veit, hvað við skulum gera," sagói Ingvar. Meðan leyniflokkurinn réði ráðum sínum, sat skáolastjórinn annars staöar í bænum og klóraði sér hugs- andi í hausnum. — Hvað á ég að gera? hugsaði skólastjórinn. Hann tók upp bréfið, sem hann hafði fundið í póstkassanum og las þaó aftur: Strákurinn, sem hleypir loftinu úr hjólunum, heitir Ragnar Hansson. Hann er í 1 A og á heima á Vestur- götu 14, fjórðu hæð. XQ Skólastjórinn var hugsi dálitla stund. Klukkan á veggnum bak við hann sló sex. ,,Eitthvað verður að gera í þessu," sagði hann ákveðinn og stóð upp. Skömmu seinna var hann á leið í skólann, þar sem átti að halda fund. Á meðan hafði leyniflokkurinn rætt áætlun sína vandlega, og nú vissi hvert þeirra, hvað það átti að gera. í fjórða tíma daginn eftir átti Ingvar frí í leikfimi, því að hann hafði meitt sig í fætinum. Hann fór upp á hæðina, þar sem stofur fyrsta bekkjar voru, og ekki löngu seinna var hvítum miða komið fyrir í jakkavasa. Og svo hvarf hann jafn hljóðlega og hann hafði komið. Þegar tíminn var búinn og nem- endurnir streymdu út, varð Ragnar Hansson eftir. Hann stóð með hvítan miða í hendinni og las: Þú hefur verið kærður, en ef þú ert röskur — fyrir kl. 14 — geturðu bjargað málinu. XQ ,,Þvaður,“ hvæsti hann fyrirlitlega og kramdi miðann í hægri hendi. Svo gekk hann hratt niður stigann. En þegar hann kom út, varð hann hugsi. Þaó skyldi þó ekki vera Hans, sem njósnar um mig? hugsaði hann og kreppti hnefana. Það skyldi hann fá borgað. Hann gekk í burtu og settist á hjólið sitt. Svo blístraði hann ánægður og tók ekki eftir því, að þrenn augu fylgdust vandlega með honum, auk einna í skóladyrunum. Það var Bergur kennari, sem stóð vörð, meðan hann velti því fyrir sér, sem skólastjórinn hafði sagt frá í gærkvöldi. Það höfðu orðið miklar umræður um, hvað gera skyldi, þegar hann sagði frá Pétri og Qla og hótun- armiðunum. Hann varð að brosa, þegar honum varð hugsað til þessa flokks XQ. Þetta hlutu að vera ein- hverjir skarpir krakkar, sem fylgdust mjög vel með öllu. Það væri gaman að vita, hverjir það væru, sem höfðu gert sjálfa sig að svo atkvæðamikilli eftir- litslögreglu. En þessi Ragnar Hansson . . •? Hvernig strákur skyldi hann vera? Gat það verið hann, sem vann þessi au- virðilegu skemmdarverk á hjólunum? Þaó varfjöldinn allur af kvörtunum, sem höfðu borist undanfarið, og eitt- hvað varð að gera. En það var líka rétt, sem skólastjórinn hafði haldió fram kvöldið áður, að það var ekki hægt að taka strákinn bara vegna þessarar leynilegu orðsendingar. En það hafði verið samþykkt einróma að hafa vakandi auga á honum. Björn lá vel falinn inni í garði rétt við skólann. Það var bara lág girðing, sem skildi hann frá leikvelli skólans. Hann lá grafkyrr og var tilbúinn með myndavélina. Þarna kom Ingvar og gekk að hjólinu sínu, og með mikiNi leikni kom hann hvítum miða fyrir undir sætinu á hjóli Ragnars. Björn brosti í kampinn, þegar Ingvar hvarf af skólasvæðinu. En hvað var þetta ekki . . .? Jú, svo sannarlega — þarna kom Ragnar! Nú var um að gera að nota tækifærið, þegar hann læsi hótunarbréfið. Ragnar leit snöggt í kringum sig, þegar hann varð var við hvíta miðann- Hann las það, sem á honum stóð og leit aftur í kringum sig. Svo virtist sem miðinn frá Ingvari hefði gert hann al- varlega smeykan. Hann fékk bara 10 mínútna frest til að gefa sig fram ^ sjálfsdáðum. Ragnar svipaðist enn um. Svo varð hann öskureiður og reif bremsubark- ann af hjólinu, sem næst stóð, sneri sér svo við og sparkaði í annað, svo að loftið fór úr því. Svo kastaði hano
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.