Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1982, Blaðsíða 36

Æskan - 01.04.1982, Blaðsíða 36
vESKAN i83ÁRA Þann 22. febrúar sl. fögnuöu ís- lenskir skátar fjórum stórafmælum: 75 ára skátastarfi í heiminum, 70 ára skátastarfi á íslandi, 60 ára kvenna- skátastarfi á íslandi og 50 ára hjálp- arsveitastarfi skáta á íslandi. Hér á landi eru í dag starfandi 38 skátafé- lög, auk þess sem 12 hjálparsveitir og 5 St. Georgs-gildi starfa í tengslum viö hreyfinguna. Alls eru því undir skátamerkjum um 5.500 íslendingar. Skátahreyfingin hóf starfsemi sína formlega áriö 1908 og ári síðar var Baden-Powell hylltur í London, þar sem saman voru komnir um 11.000 skátar. Frá þeirri stundu breiddist skátahreyfingin út um allan heim eins og eldur í sinu. Fyrst voru eingöngu drengir í skátahreyfingunni, en fljót- lega hófst einnig sérstakt stúlkna- starf. Kynni íslendinga af skátastarfi hefjast sumarið 1911 er hingaö til lands kom maöur aö nafni Ingvar Ólafsson, sem haföi dvalist í Dan- mörku um hríö og kynnst þar starf- 1. stjórn Bandalags íslenskra skáta. II. W'. ÁoúKlsson. c. u, Srrins J. O. ’lúnsson. A. V. Ttilinius. félag haföi aö ýmsu leyti sérstööu innan hreyfingarinnar, bæöi það að í fyrstu var þaö ekki stofnað sem skátafélag, þó starfsemi sveigðist fljótt í þaö horf, og svo hitt, að þaö var stofnað innan vébanda KFUM í Reykjavík. Axel V. Tulinius var einn af frum- kvöðlum skátastarfs hérlendis, en fyrsta hugmyndin aö stofnun Banda- lags íslenskra skáta kemur fram hjá Ársæli Gunnarssyni, sem um langt skeiö var einn mesti forvígismaður og foringi Væringjafélagsins. Þaö var 17. dag júnímánaðar árið 1927 sem það bandalag sem nú starfar var stofnaö. Axel V. Tulinius var kjörinn fyrsti skátahöfðingi íslands og gegndi hann því starfi allt til ársins 1937. Helgi Tómasson tók við af Axel og var skátahöföingi til dánardags 1958. Þá var Jónas B. Jónsson kosinn skáta- höföingi og gegndi hann því allt til ársins 1971. Þá tekur Páll Gíslason viö og var skátahöfðingi allt þar til á síðasta ári, er Ágúst Þorsteinsson var kjörinn skátahöföingi. Sögu skátahreyfingarinnar hér- lendis er ekki hægt aö gera nákvæm skil í þessum línum, en þess má geta aö fyrsta kvenskátafélagið var stofnaö áriö 1922. Skátastarf hefur í gegnum tíöina verið unnið í flokka- starfi í anda kenninga Baden- Powells. í yngstu flokkum skáta- starfsins eru börn á aldrinum 9—11 ára og hafa þau gengið undir nafninu ylfingar og Ijósálfar, einnig léskátar, nú síöustu árin. Þá tekur viö áfanga' skátastarf 11—14 ára, síðan drótt- skátastarf. Eldri skátar hafa tekið að sér foringja- og hjálparsveitarstörf, einnig hafa þeir stofnaö með sér sér- stök félög og samtök til aö viöhalda gömlum kynnum í tengslum skátahreyfinguna. I rás tímans hefur hópstarfiö tekiö nokkrum breytingum og starfa drengir og stúlkur meira Tiinnimist'n. saman í flokkum en áöur var. Axel V. Tulinius. semi skáta. Skátafélag Reykjavíkur var þó ekki formlega stofnaö fyrr en ári síðar, eða 1912, og var þá aðeins ein sveit stofnuö. Skömmu síðar uröu sveitirnar þrjár. Næst á eftir Skátafélagi Reykjavíkur komu Væringjar í Reykjavík. Stofn- andi þeirra var hinn kunni æskulýðs- 1 leiötogi, síra Friörik Friðriksson. Þaö 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.