Æskan - 01.04.1982, Blaðsíða 10
H. C. Andersen:
( GJAMM
Allir fuglarnir ískóginum sátu á trjánum og það var nóg
af blöðum á greinunum. Samt kom þeim saman um, að
þeir yrðu að fá sér eitt blað í viðbót, það átti að vera
verulega gott blað, sams konar blað eins og mennirnir
hefðu, já, mennirnir áttu svo mikið af þeim blöðum, að
helmingurinn hefði verið miklu meira en nóg.
Söngfuglarnir vildu láta gagnrýna sönglistina, hver um
sig vildi láta hæla sínum söng og finna að hjá hinum (ef
hægt væri), en þeir gátu ekki komið sér saman um neinn
óvilhallan dómara.
,,Fugl veröur það að vera," sagði uglan, hún hafði
verið kosin fundarstjóri, því að hún var vísindafugl. ,,Það
er ekki um önnur dýr að ræða, nema þá ef vera kynni úr
sjónum. Þar fljúga fiskarnir alveg eins og fuglarnir í loft-
inu, en annað er ekki skylt með þeim. Svo er auðvitað til
fjöldinn allur af dýrum á milli fugla og fiska."
Þá tók storkurinn til máls og það skrölti í nefinu á
honum eins og í hrossabresti. ,,Það eru til skepnur, sem
hvorki eru fugl né fiskur," sagði hann. „Þær búa í mýrum
og keldum, það eru froskarnir, og þá vil ég kjósa. Þeir eru
ákaflega söngelskir, þegar þeir syngja er það einna líkast
hljómnum af ótal kirkjuklukkum í skógarkyrrðinni; ég
verð altekinn af útþrá, mig kitlar undir vængjum, þegar
ég heyri til þeirra."
H. C. Andersen.
,,Ég kýs líka froskinn," sagði hegrinn, ,,hann er hvorki
fugl né fiskur, en syngur þó eins og fugl og syndir eins og
fiskur."
,,Jæja, þetta er sú hliðin, sem að sönglistinni snýr,"
sagði uglan, ,,en blaðið verður að láta fleira til sín taka,
það verður að ræða um allt, sem fagurt er í skóginum. Það
verða fleiri að leggja hönd á plóginn, við skulum litast um
hver í sínu umhverfi."
,,Froskurinn má ekki verða ritstjóri blaðsins, það er
næturgalinn, sem á að verða það," sagði lævirkinn litli
og söng svo fagurt og frjálslega.
,,Hættu þessu tísti," sagði uglan og rak upp væl til
merkis um það að á fundinum ætti að ríkja ró og regla-
,,Ég þekki næturgalann vel, hann er næturfugl eins og
ég. Fuglarnir syngja hver með sínu nefi. Hvorugur okkar
á að verða fyrir valinu, því ef svo færi, þá yröi blaðið
málgagn höfðingja eða heimspekinga, eða með öðrum
orðum yfirstéttarblað, sem hinir voldugu réðu einir yfih
það má ekki eiga sér stað, þetta á iíka að veröa alþýðu-
blað."
Svo var stungið upp á að blaðið skyldi heita ,,Morg-
ungjammið" eða ,,Kvöldgjammið", eða blátt áfram
,Gjamm" eins og hljóðið í froskinum, og það varð úr.
Blaðið mun bæta úr brýnustu þörf skógarbúa. Bý'
10