Æskan - 01.04.1982, Síða 11
fluQan, maurinn og moldvarpan lofuöu greinum um
^yggingarlist, þar máttu þau trútt um tala.
Gaukurinn er skáld náttúrunnar, hann er ekki talinn
nteðal söngfugla, en þó mikils metinn af alþýðu manna.
"Hann tranar sér alls staðar fram og er hégómlegastur
allra fugla“, sagði páfagaukurinn, ,,og samt er hann svo
skelfing lítilmótlegur í útliti."
Svo komu maðkaflugurnar á fund ritstjórans í skógin-
um.
"Vió erum komnar til þess að bjóða yður hjálp okkar,"
sögðu þær. ,,Við þekkjum fólkið, við þekkjum ritstjórana,
Vlð Þekkjum ritdómarana og þeirra aðferðir. Við setjumst
bara á heilbrigt hold og spýjum á það, og áður en sólar-
hringur er liðinn er þaó farið að rotna. Okkur er alveg í
iófa lagið að eyðileggja snjöllustu listgáfu, ef ritstjórnin
Þarf á að halda. Sé blaðið flokksblaó og flokkurinn vold-
ugur, þá er óhætt að beita hvaða ruddaskap sem er, þó
að einn áskrifandi segi upp, þá koma bara 16 nýir í
staðinn. Verið nógu ósvífnir, uppnefnið fólk, setjið það í
gapastokkinn, bendið á menn og blístrið — eins og
Ur>grnennafélagarnir — þá megið þér treysta því, að þér
verði voldugir í landinu."
"Aö sjá þennan vindbelg, sem þeytist þarna um allar
jarðir," sagði froskurinn og átti við storkinn. ,,Ég verð að
Jata, að þegar ég var lítill, þá leit ég upp til hans og titraði
af aðdáun. Og þegar hann var að spígspora í mýrinni og
láta móðan mása um Egyptaland, þá víkkaði sjóndeild-
arhringur minn, og ég fór að eygja undralönd í fjarska.
En nú hefur hann engin áhrif á mig lengur, nú er ekkert
eftir annaó en ómur endurminninganna. Nú er ég orðinn
V|trari, ég er farinn að hugsa, ég er orðinn atkvæða-
maður, nú er ég farinn að skrifa ádeilugreinar í
"Gjammið"; með öðrum oróum, ég er á máli mannanna
réttnefndur gjammari.
þetta á sér líka stað í mannheimum. Ég skrifaöi rit-
stjórnargrein um það í blaðið okkar."
(H. G. íslenskaði. Sagan er samin 1869, en kom út í fyrsta
sinn 1926.)
Allir, sem verið hafa í sveit, hafa séð lömb leika
sér og ánægjan skín út úr þeim. Heimaalningur,
sem elst ekki upp með öðrum kindum leikur sér
við börnin á bænum og bæði heimaalningnum og
börnunum þykirgaman.
Hundar og kettir, sem alast upp á sama bænum
verða oft góðir vinir og hafa gaman af að leika sér
saman og hafa mikla ánægju af því. . M
Hitamælir
ÁRIÐ 1714 komst Þjóðverjinn
Fahrenheit að því að hægt var að
mæla hita með kvikasilfri. Sama ár
kom Frakkinn Réaumur fram með
nýja skiptingu á hitastigunum, en
Svíinn Celcius fór að mæla hita með
mælikvarða þeim, sem plöntu-
fræðingurinn Linné fann upp, árið
1742.
11