Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 14
'ÆSKAN
i83ÁRA
LISTIN AÐ
SPÁ í SPIL
Talið er að spil muni fyrst hafa
flust til landsins á 17. öld, og líklegt
er að þeim hafi þá þegar fylgt sú trú,
að með aðstoð þeirra mætti skyggn-
ast inn í framtíðina. En til þess voru
hafðar ýmsar aðferðir, og flestar af
erlendum toga spunnar. Það var kall-
að að ,,spá í spil“, og mun sú list ekki
vera aldauða enn hér á landi.
Stundum voru hrökin tekin úr spil-
unum, þau síðan stokkuð 9 sinnum,
og því næst lögð á borð. Fór þá spáin
eftir því í hvaða röð spilin komu.
Svörtu spilin boðuðu yfirleitt leiðindi,
eða eitthvað illt, en rauðu spilin boð-
uðu gott fyrir þann, sem verið var að
spá fyrir. Hvert spil hafði sína merk-
ingu út af fyrir sig, og aðra merkingu í
sambandi við næstu spil að framan og
aftan í röðinni. Kóngarnir táknuðu
t. d. karlmenn, drottningarnar konur,
gosarnir unga pilta, en sjöur hugi
kvenna. Auk þess táknuðu vissir litir
menn, sem líta út á sérstakan hátt.
,,Þeir sem eru rauðlitaðir á hár, þykk-
leitir og rjóðir, eru hjarta. Þeir sem eru
lítilleitir og Ijósleitir á hár, eru tígull.
Þeir sem eru þykkleitir og dökkir á
hár, eru spaði. En laufiö táknar lítil-
leita menn og hvítleita, hvernig sem
háraliturinn er.“
Einfaldasta aðferðin til að spá í spil,
er sú, að hvert spil hafi sína merkingu,
eins og þessi skrá sýnir:
Ás: H. Hún, T. bréf, L. stórgjöf, S.
dánarfregn.
Tvistur: H. gifting, T. ánægjuefni, L.
leyndarmál, S. eitthvað mistekst.
Þristur: H. friðsemi, T. nýr vinur, L.
ósk manns rætist, S. örðugleikar,
en þó ekki miklir.
Fjarki: H. geðfelldur atburður, T.
ábatasöm verslun, L. fréttir, S. að
maður verði fyrir þjófnaði.
Fimm: H. óvænt fregn, T. peningar
eru í vændum, L. ferð, en ekki
löng, S. vesöld eða lasleiki.
Sex: H. mikil gæfa er í vændum, T.
hamingjuvon, L. gott embætti eða
góður hagur, S. slæm tíöindi.
Sjö: H. veisla, T. von er á einhverju
þægilegu, L. illa ertalað um mann,
S. fals og flærð er í vændum.
Átta: H. innileg vinátta, T. fyrirætlan
eða fyrirtæki gefst vel, L. maður
verður fyrir álygum, S. hryggð.
Nía: H. heit ást, T. gjöf, en ekki stór, L.
langferð, S. öfund.
Tía: H. trúr unnusti eða unnusta, T.
miklir peningar, L. sorglegur at-
buróur, S. sótt eða mikil veikindi.
Gosi: H. ungur og laglegur maður
leitar ráðahags, T. gleðileg tíðindi,
L. tjón af undirferli annars, S. víf-
inn maður.
Drottning: H. falleg og væn stúlka
hefur lagt hug á þig, T. heldri kona
gerir þér eitthvað til gagns eða
gleði, L. ekkja eða gömul kona, S.
óvönduð kona.
Kóngur: H. einlægur vinur, T. heldri
maður er þér innan handar, L.
heimsókn sem ekki var búist við, S.
ágjarn maður.
Eftir þessu getur svo hvert manns-
barn ,,spáð í spil“, og getur orðið að
því mikil skemmtun. Spámaðurinn,
eða spákonan, tekur heil spil (52) og
stokkar þau vel og vandlega. Síðan á
sá sem spáð er fyrir, að draga 5 spil úr
stokknum. Má svo segja eftir þeim
stuttan eða langan spádóm eftir vild,
og er þá farið eftir merkingu hvers
spils og eins eftir því í hvaða röð þau
voru dregin. Til þess að skýra það
betur hvernig á að spá, eru hér tekin
tvö dæmi í myndum.
Fyrra dæmi: Sá, sem spáð skal fyrir,
dregur þessi spil og í þessari röð: H9
heit ást —, S3 — erfiðleikar —, TK —•
heldri maður er þér innan handar —,
L6 — gott embætti eða góður hagur
—, H2 — gifting. Úr þessu má svo
lesa þennan spádóm: Þú ert ástfang-
inn, en horfur eru ekki góðar um að
þú fáir stúlkuna, vegna þess að þú
þykir óráðinn. En þá kemur einhver
heldri maður þér til hjálpar, útvegar
þér gott embætti eða góóa atvinnu.
Þá er ekkert til fyrirstöðu lengur og
þið giftið ykkur.
Seinna dæmið: Þar hafa þessi spi(
verið dregin: T3 — nýr vinur —, SD —
14