Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 26
SAGAN UM KRISTÓFER KÓLUMBUS
15. Og sama árið í september var nýi leiðangurinn ferðbúinn og Kólumbus
lét í haf með 17 skip og 1500 manns og ennfremur hafði hann með sér ýms
húsdýr og jurtir. Hann tók nú suðlægari stefnu en í fyrra skiptið og eftir mán-
aðar siglingu tók hann land við Litlu-Antillu-eyjar. Næstu daga fann hann fjölda
af nýjum eyjum og sigldi svo norður til Haiti til þess að hitta mennina, sem hann
hafði skilið eftir í fyrri ferðinni. En þegar þangað kom var virkið eyðilagt og
Indíánarnir höfðu strádrepið alla mennina og étið þá. Þarna var því sýnilega
ekki hægt að stofna nýlendu svo að Kólumbus hélt áfram til norðurstrandar
Haiti og stofnaði þar bæ, sem hann skírði (sabella.
16. Frá ísabella héldu skipin svo áfram til að finna fleiri lönd. Kólumbus
kannaði Kúbu en fann ekki suðuroddann og áleit því að þetta væri meginland
Indlands. Hann sneri aftur til Haiti en þá var byrjuð uppreisn í nýlendunni hans,
út af því að landnemarnir fundu ekki eins mikiö gull og þeir höfðu búist við og af
því að þeir urðu að vinna sjálfir. Kólumbus leyfði þeim þá að láta Indíánana
vinna hjá sér sem þræla. En nú kom bróðir hans, Bartholomeo með meira lió frá
Spáni og varð hann nú nýlendustjóri en Kristófer Kólumbus fór til Spánar til aó
sækja fleira fólk.
17. Á Spáni hafði vaknað óánægja yfir því hve lítið hafðist upp úr hinu nýja
nýlenduríki, en þó gat Kólumbus farið í þriðju ferð sína vestur í byrjun ársins
1498, með sexskip. í þetta sinn fór hann miklu sunnar en í fyrri feröunum og nú
fann hann eyjuna Trinidad og nyrstu hluta Suður-Ameríku, og einhvernveginn
fékk hann þá flugu í höfuöið, að þetta nýja land sem hann hafði fundið væri
Paradís.
18. Þegar hann kom til Haiti logaði þar allt í uppreisn, og uppreisnarmenn
höföu gert Spánarkonungi oró og beðið um hjálp. Sendi hann yfirdómara
vestur til að koma friði á. Dómari þessi, Bopadilla hét hann, reyndist sein-
heppinn. Hann hrifsaði völdin og lét varpa Kólumbusi og bræðrum hans
tveimur í fangelsi og síðan flytja þá til Spánar. En þetta gekk fram af Spánar-
konungi. Bopadilla var settur af og nýr floti sendur af stað og Kólumbus með
honum. Hann átti að finna sund nokkurt, sem næði inn í miðbik ,,lndlands".
— Vald konunganna er mikið, en
það er eitt vald, sem er meira. Hvað er
það?
— Það, það ... er... er.
— Já, láttu mig heyra!
— Ásinn.
Skrýtlur.
Eiríkur litli biður kvöldbænina sína
og kallar hátt:
— Góði guð vertu nú góður o9
gefðu mér nýtt hjól!
Móðirin: Þú þarft ekki að hrópa
svona hátt — Guð er ekki heyrnar-
sljór.
Eiríkur litli: Nei, en pabbi heyrirsvo
illa.
26