Æskan - 01.04.1982, Page 40
VUDAKOSNIH BRESKU POPPBIADANNA
Nýlega birtu bresku poppmúsíkblöðin val lesenda
sinna á vinsælustu poppstjörnunum. Þar virðast engar
poppstjörnur hafa eins áberandi forystu í vinsældum og
Bubbi og Utangarösmenn/EGÓ hafa hérlendis.
í Bretlandi eru það hljómsveitirnar Jam og Human
League sem skipta á milli sín efstu sætunum. Vinsældir
Jam vekja nokkra undrun. Þessi ágæta ,,mod“ rokk-
hljómsveit sendi ekki frá sér neina plötu á síðasta ári. En
eins og dæmin sanna t. d. frá Islandi þá eru vinsælar
plötur einn besti meðbyr sem popparar fá í vinsælda-
kosningum. Vinsældir Jam eru þess vegna kærkomin
undantekning frá reglunni. Reyndar kemur önnur
hljómsveit einnig vel út úr umræddum vinsældakosn-
ingum þó hún hafi ekki heldur sent frá sér plötu á síðasta
ári. Þetta er hljómsveitin Clash (sem lenti í 5. sæti yfir
vinsælustu erlendu hljómsveitirnar í vinsældavali Æsk-
unnar í janúar sl.).
Vinsældir ný-rómantísku hljómsveitarinnar Human
36
æ;skan
83ÁRA
Haul Weller, söngvarl JAM.
League þurfa ekki að koma neinum á óvart. I áramóta-
uPP9jöri breskra og íslenskra blaða deildi Human
League-platan ,,Dare" nefnilega titlinum „besta plata
arsins '81 “ með Heaven 17-plötunni „Penthouse &
pavement". Því má til gamans skjóta hér inn í að helstu
f°rvígismenn Heaven 17 voru stofnendur Human League
á sínum tíma.
Þá láta bresku blöðin lesendur sína ævinlega velja
leiðinlegustu og óþörfustu manneskju heims. Að þessu
sinni lenti það á söngvaranum Adam Ant að bera þann
háðuglega titil.
New Musical Express bryddaði jafnframt upp á þeirri
nýjung að láta kjósa um þá manneskju sem lesendur
sakna mest. Að sjálfsögðu var bítilsins John Lennons
saknað sárast. lan Curtes (fyrrum söngvari Joy Division)
og Bob Marley lentu í 2. og 3. sæti.
Ekki sáu bresku blöðin ástæðu til að skipa reggí- og
ska-poppurum í sérstakan bás að þessu sinni. Það kom
þó ekki í veg fyrir að hljómsveitirnar Beat, Madness og
UB 40 kæmust ofarlega á blað. Svo skemmtilega vill til að
síðastnefnda hljómsveitin er væntanleg til íslands í sum-
ar. Væntanlega mun hún halda tvenna hljómleika í veit-
ingahúsinu Broadway. Fyrri tónleikarnir verða þá sér-
staklega ætlaðir börnum og unglingum.