Æskan - 01.06.1989, Blaðsíða 12
Leidbeinendur og garðyrkjufólk í skólagörðunum í Laugardal.
sér stór og myndarleg hús. Að
vísu er það ekki framtíðarhús-
næði en veitir ánægju meðan
það stendur uppi.
Leiðbeinendurnir, sem
Æskan ræddi við, voru
Hrefna Björk Þorsteinsdóttir,
Haraldur Hannes Guðmunds-
son, en hann er smíðavallar-
stjóri, Auðbjörg Lísa Gústafs-
dóttir, Auður Gyða Ágústs-
dóttir og Sóley
Guðmundsdóttir en hún er
einn af starfsmönnum í
Vinnuskóla Reykjavíkur og
starfar í skólagörðunum.
Hrefna Björk hafði helst
orð fyrir hópnum. Hún sagði
að í ár væru 140 börn á aldrin-
um 8-12 ára í hópnum í Laug-
ardalnum. Yngri börnin fá 12
fermetra garð en þau eldri fá
helmingi stærri skika. Áður
en börnin heíjast handa er bú-
ið að plægja svæðið og skipta
því niður í reiti. Þau byrja á
að hreinsa garðinn og bera á
áburð. Að því loknu eru settar
niður kartöflur.
Því næst eru settar niður
ýmsar tegundir af grænmeti
og káli: - Hreðkur, næpur,
blómkál, hvítkál, salat og
fleira. Og einnig eru sett nið-
ur sumarblóm.
Lagt er kapp á að börnin
leggi sig fram og fá þau ein-
kunn fyrir frammistöðu sína
með reglulegu millibili. Mæti
þau illa eða hirði garðinn sinn
slaklega er hann gerður upp-
tækur.
Ekki er bara stunduð garð-
rækt í Laugardalnum því að
reynt er að fara reglulega í
skoðunarferðir á söfn, í fyrir-
tæki og stofnanir. Þannig er
farið í Árbæjarsafn, Þjóð-
minjasafnið, í Mjólkursam-
söluna og á ýmsa fleiri staði.
Þá er einnig farið í leiki og
gert ýmislegt saman í hóp. Á
hverju sumri er haldið knatt-
spyrnumót milli skólagarð-
anna í borginni og á síðasta ári
lauk því með úrslitaleik sem
fram fór í Þrastarlundi í
tengslum við lokahátíð sem
þar fór fram.
Árangur erfíðisins og sam-
viskuseminnar kemur síðan í
ljós síðari hluta ágústmánaðar
og í september. Þá fara börnin
heim með alls konar grænmeti
og allir geta borðað nægju sína
af hollum mat.
„Það er líka gaman
að reyta arfa"
Ársól Margrét Þórisdóttir
heitir 10 ára stúlka sem sat og
fylgdist með þegar blaðamað-
ur ræddi við starfsfólkið. Hún
var lífleg og fylgdist með öllu
því sem fram fór. Þvi lá beint
við að spyrja hana hvernig
henni líkaði í skólagörðunum-
„Mér finnst gaman.“
Þegar hún var spurð hvað
sér þætti skemmtilegast svar-
aði hún að það væri svo
margt. Sér þætti samt líklega
skemmtilegast að setja niður
og svo væri ágætt að reyta
arfa.
Ársól Margrét Þórisdófíir
Ársól Margrét sagði að hún
væri nú í fyrsta skipti í skoia
görðunum. Hún sagði að hun
ræktaði hreðkur, spínat °°
kartöflur.
Hún var spurð hvað hun
ætlaði að gera við uppskerun3
og ekki stóð á svari. Hún s1
aði að borða hana, fara
hana heim og leyfa fjölskyl
unni að njóta hennar með se^
Ungt
fólk
með
græna
fingur
Hvað er gert
í skólagörðunum?
Þegar sól hækkar á lofti fara
foreldrar og börn að huga að
hvað þau geti gert sér til
ánægju í sumarfríinu. í
Reykjavík og víðast hvar ann-
ars staðar á landinu er boðið
upp á fjölbreytta afþreyingu
sem veitir mikla ánægju.
Iþrótta og tómstundaráð
Reykjavíkur sendir á vorin
bækling inn á öll heimili þar
sem börn eiga heima og í hon-
um sést að um mjög margt og
fjölbreytilegt félags-og tóm-
stundastarf er að ræða.
ALskan fór á stúfana til að
kynna s£r einn þátt í starfsemi
Reykjavíkurborgar og var
ferðinni heitið í skólagarðana í
Laugardal. Þetta var á regn-
votum þriðjudagsmorgni og
þegar komið var að bækistöð-
inni var hópur barna í „yfir“
en hinir sátu inni og teikn-
uðu, spjölluðu saman og spil-
uðu myllu. Þarna voru nokkr-
ir leiðbeinendur og voru þeir
teknir tali.
í skúrnum við Holtaveginn
hafa bæði skólagarðarnir og
smíðavöllur aðstöðu. Á smíða-
völlinn koma börn og byggja
12ÆSKAU