Æskan - 01.06.1989, Blaðsíða 24
»JEsku
\ póstunnn ;
■ Póstfangið er:
^■ ^0 Æskan, pósthólf 523,
^ 121 ReyKjavíh.
1 mmmm S ' wm m 1
; ; ; . ;
5aga og vísur
Sæl, góða Æska!
Mig langar til að segja ykkur sögu:
Blýanturinn
Ég er skólablýantur. Þegar ég er í
pennaveskinu verð ég að halda mér fast og
sérstaklega ef Harpa er að flýta sér í skól-
ann. Ég hoppa samt alltaf þótt ég haldi
mér eins fast og ég get.
í skriftartímum er mér hent á borðið.
Á ég að segja ykkur leyndarmál? Strok-
leðrið er alltaf að stríða mér. Mér finnst
gott á strokleðrið að Harpa strokar mikið
út. En það er slæmt að hún skrifar svo
mikið að ég er orðinn svo lítill að hún get-
ur ekki notað mig lengur. . .
Tvaer vísur
Krummi litli situr á kletti,
honum er sama þótt hann detti,
þá flýgur hann heim,
beint út í geim.
Ég veit um eina kind,
er reyndar líkist mynd,
hún líkist sjálfri sér,
úff, sem betur fer ekki mér!
Harpa í Hvammi.
efni,
Þakka þér fyrir skemmtilegt
Harpa.
Til gamans bendum við á hvernig fella má
fyrri vísuna í stuðla og hiifuðstafi:
Lítill situr krummi á kletti,
karli er sama þótt hann detti.
Þá flýgur hann heim
um heiðbláan geim. . .
Fullt nafn
og heimilisfang. . .
Sæl, kæra Æska!
Mig langar til að vita af hverju
maður þarf að rita fullt nafn og heim-
ilisfang ef skrifað er til þáttarins
Æskuvanda.
Ég vildi gjarna fá veggmyndir af
River Phoenix eða Tom Cruise.
X-4689.
Svar:
Það er sjálfsögð kurteisi að rita
fullt nafn undir bréf. Viðtekin venja
er að birta ekki bréf nema þess hafi
verið gœtt. Við notum tœkifœrið til að
minna alla þá sem senda Æskunni
bréf á að undirrita það á réttan hátt
- um hvað sem skrifað er. Við birtum
bréf undir dulnefni sé þess óskað
- eins og oft áður hefur verið nefnt.
Hver veit nema þér verði að ósk
þinni um veggmynd?
Meira um
frjálsar íþróttir
Kæra Æska!
Ég þakka mjög skemmtilegt blað
en það yrði enn skemmtilegra ef
meira yrði birt um íþróttir en verið
hefur - ekki endilega handknattleik
heldur frjálsar íþróttir. Frjálsíþrótta-
mót eru haldin nærri annan hvern
dag einhvers staðar á landinu en ekk-
ert er fjallað um það. Þið skuluð samt
ekki sleppa handknattleiknum því að
hann er eftirlætisíþrótt mín.
Dísa.
Svar:
Eg tek þetta til athugunar. Það er
rétt að um skeið hefur ekki verið fjall-
að mikið um íþróttir almennt en viðtöl
við íþróttafólk eru alltaf annað veifið.
Á íþróttasíðum dagblaðanna cru úr-
slitum á mótum gerð góð skil, einnig
mótum barna og unglinga. Tímarit
geta ekki sinnt þeim þœtti eins vel og
þau.
Límmiðar
Kæri Æskupóstur!
Ég er nýorðinn áskrifandi að Æsk'
unni og fmnst hún æðislega skemmn'
leg.
Gætuð þið gert límmiða með popP'
stjörnum, t.a.m. Tom Cruise>
Madonnu, Kim Wilde, Söndru,
Whitney Houston, Michael Jackson,
Morten Harket og Rick Astlev?
Myndir af hljómsveitum mættu líka
vera á límmiðunum, t.d. af Bros, A'
Ha, Milli Vanilli og Pet Shop Boys-
Plútó.
Svar:
Myndir af flestum, sem þú ncfnV’
hafa verið á límmiðum Æskunnar■
Myndir af Mikkjáli og Tomma bárust
áskrifendum í vetur, aðrar í fyrra °S
hittifyrra. Kim skreytir miða se>"
sendir verða í haust, einnig
Minogue, Kiver Phoenix, Marily"
Monroe, James Dean; að ógley>ndn
Lindu Pétursdóttur og Sálinni hans
Jóns míns. . .
Aðdáendur 5tefáns
Kæri Æskupóstur!
Ég þakka mjög gott blað.
Mig langar til að spyrja þig hvoh
til sé aðdáendaklúbbur Stefáns Hilnl
arssonar?
Norsk stelpa vill gjarna eignaS
pennavini á aldrinum 14-15 ara'
Áhugamál hennar eru: Kettir, dans>
lestur, ljóðagerð og margt fleira. HU*J
heitir Elisabeth Olsson og á heima a
Knivskjell v. 62, 4320 Hammersak-
Norge.
Kópavogsbúi.
Svar:
Stefán á marga aðdáendur cn
veit ekki til að komið hafi verið a
aðdáendaklúbbi hans.
ég
P1
24 ÆSKAH