Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1989, Side 23

Æskan - 01.06.1989, Side 23
í júní 1986 fór ég með mömmu, pabba og Möggu vinkonu í sumarfrí til Dan- merkur. Við dvöldumst í viku hjá Óla danska, eins og við kölluðum hann, í Skovlunde sem er úthverfí Kaup- mannahafnar. í Kaupmannahöfn skoð- uðum við okkur vel um, sigldum um síkin, fórum í Tívolí og á Bakkann. Við kvöddum Kaupmannahöfn og héldum niður að höfn. Þaðan tókum við ferju áleiðis til Sámseyjar. Eftir rúmlega tveggja tíma siglingu kom hún í ljós. Eyjan var grænni en ég bjóst við. Sáms- ey er í miðju Danmerkur og flestir íbú- arnir rækta kartöflur eða ala svín. Óli danski á tvö hús í Toftebjerg. Þau eru eins og flest húsin á eyjunni, í dönskum stíl, svört og hvít bindingshús með hálmþökum. Annað húsið hefur nýlega verið lagfært. Þar bjuggum við. Ég og Magga sváfum á efri hæð hússins í sérherbergi sem var með litlum svöl- um. Hitt húsið, sem Óli á, lánar hann tveim atvinnulausum vinum sínum þeim Jens og Níelsi. í staðinn hugsa þeir um hundinn hans en sá er kolsvart- ur, hreinræktaður labrador og heitir Tjekkó. En nú var Tjekkó hjá okkur. Um kvöldið gat ég ekki sofnað því að daginn eftir átti ég afmæli. Ég var svo spennt. Ég vaknaði snemma. Allir óskuðu mér til hamingju með daginn. Ég var orðin tólf ára. ára afmælið eftir Gunni Róbertsdóttur 14 ára. | Því næst drifum við okkur niður á | bryggju. Þar beið okkar sportbáturinn | hans Óla og við fórum um borð. Ferðin gekk vel. Við þutum áfram. I Mamma og pabbi voru leyndardómsfull | eða svo fannst mér. Þau voru að fela | eitthvað! | Ég vissi ekki hvert við vorum að fara | en eftir 20 mínútur komum við að eyði- | eyju. Óli hægði ferðina og sigldi inn í I litla vík. Við óðum í land. Tjekkó | hoppaði af gleði og reyndar við Magga | líka. | Eyjan var öll sundurgrafín af kanín- | um sem áttu þar holur sínar. Tvö og tvö | hvít eyru sáust víða bak við villigróður- I inn. Þegar Tjekkó tók eftir þeim hljóp | hann strax af stað. Þó að hann væri | sjö ára var hann sprækur eins og hvolp- | ur. | Það var yndislegt veður. Sólin skein | og sjórinn glitraði. Óli náði í teppi og | breiddi úr því á grasið. Þá kom mamma | með þessa fínu þriggja hæða rjóma- | tertu, afmælisrjómatertu. Hún hafði að | vísu lagst lítið eitt saman í hitanum en | það var bara betra. Pabbi kom með af- | mælisgjafirnar. Þær voru frábærar. Á eftir fórum við Magga og Tjekkó í | gönguferð um eyna en skyndilega hvarf | hundurinn. Við komum auga á op í I berginu og þar sem Tjekkó rannsakar | allt og alla álitum við að þangað hefði I hann farið. Við gægðumst inn um opið | og þar kom í ljós lítill hellisskúti. Það | var kalt inni en í loftinu var dálítið gat 1 svo að þar var sæmilega bjart. Þá heyrð- | um við eitthvert þrusk og sáum Tjekko | krafsandi úti í horni. Þegar við komuni | nær var þar bara músarhola og við | drógum hann út í dagsljósið. | Þegar við komu út fórum við að leika | okkur í sjónum og Tjekkó svamlaði | með okkur. | Pabbi kallaði á okkur og sagði að við I þyrftum að fara til baka. Við tókum | saman dótið og hlupum í átt að bátn- I um. | Á heimleiðinni þykknaði skyndilega 1 | lofti og á skall hellidemba með þrumum | og eldingum. En við tókum því bara 1 létt, sátum úti rennblaut og borðuðum | girnilegt svínasnakk frá Sámsey. Pa^ | birti til og stuttu seinna sigldum við mn | í höfnina. Dagurinn leið alltof hratt en það gera | þeir alltaf þessir skemmtilegu. Þessum afmælisdegi gleymi ég aldrel> | svo eftirminnilegur var hann. Hann er I eflaust sá besti. | (Sagan hlaut aukavcrðlaun í samkeppni Æskunn | ar og Barnaútvarpsins 1988) 22 ÆSKAJM ^ />* ÖRNUM VEGI Linda Björk Óskarsdóttir á heima að Ásavegi 18. Hún er að verða 12 ára. Linda Björk Óskarsdóttir - Hvað gerir þú í sumar? „Ég er í Vinnuskóla Vest- mannaeyja. Ég tíni rusl og hreinsa til.“ - Hvernig líkar þér starfíð? „Bara vel. - Já, það hefur verið ágætt veður.“ - Við hvað unir þú þér helst í tómstundum? „Bara að leika mér. Mér finnst gaman að gæta litla bróður míns. Hann er tveggja ára og heitir Andri Freyr. - Nei, það er ekkert erfítt. Hann er ósköp þægur.“ - Áttu fleiri systkini? „Ekki alsystkini - en hálf- systkini.“ - Hefur þú ferðast langt? „Ég fór hringveginn í fyrra.“ - Hvar fannst þér falleg- ast?“ „Mér fannst alls staðar fal- legt.“ - Voruð þið með tjald eða gistuð þið á hótelum? „Hvort tveggja. - Já, mér þykir gaman að sofa í tjaldi. Ég tjalda stundum úti á bletti og stundum fer ég út á eyju og tjalda þar. Vinkona mín er oft með mér. Hún heitir Sigur- dís.“ - Átt þú gæludýr? „Já, ég á kött. Það er læða og heitir Kara. Ég var níu eða tíu ára þegar ég fékk hana. Þá var hún ósköp lítil. Hún var að byrja að opna augun og ganga.“ - Varstu líka í Vinnuskól- anum í fyrra? „Nei, þá var ég í sveit hjá afa og ömmu að Álftarhóli í Rangárvallasýslu. - Nei, ég var ekki með Köru með mér og á bænum var enginn kött- ur. Þar eru kindur, kýr og hestar. Ég hjálpaði til við mjaltirnar og ýmislegt annað. Ég var að strepta og gekk bara vel. Kýrnar voru stilltar og góðar.“ (Sögnin strepta kemur mörgum lesenda eflaust ókunnuglega fyrir sjónir. Merking hennar er: „hreyta, tutla síðustu mjólkurdropana úr kú, á eða geit.“ (íslensk orðabók Menningarsjóðs) Linda Björk á við að hún hafí handmjólkað síðustu dropana úr kúnum eftir að mjaltavél- arnar höfðu lokið sínu verki) Varð undireins hvít aftur Sigríður á heima að Vest- mannabraut 38.Hún er fædd í Kópavogi en fluttist til Vest- mannaeyja 1987. Hún er ein- birni. Manstu hvað þú varst að gera þegar tekin var af þér mynd fyrir Æskuna? „Ætli ég hafí ekki verið að Sigríður Guðlaug Halldórsdóttir hjóla eða á hjólaskautum. Það finnst mér skemmtilegast.“ - Hvað manstu best frá því í fyrrasumar? „Að ég fór til Spánar með ömmu minni. Við vorum þar í þrjár vikur. Já, það var gott veður. Ég lék mér á strönd- inni á hverjum degi. Mér fannst sjórinn kaldur fyrst en svo vandist ég því. Nei, ég var ekki með íslenskum krökk- um. Ég var eini íslendingur- inn þarna á þessum aldri. En ég kynntist spænskri stelpu sem átti heima í blokk við ströndina. Vinkona mín úr Kópavogi var á sama u'ma á Spáni, bara á öðrum stað. Hún heitir Þóra Hjaltadóttir. Við höfum verið vinkonur lengi og hún hefur heimsótt mig í Eyjum. Hún kom í afmælið mitt. Hún kemur aftur þegar skólinn er búinn. Jú, ég varð dálítið brún en ég varð undireins aftur hvít þegar ég kom heim.“ - Hefur þú farið til fleiri landa? „Já, ég fór til Bandaríkj- anna með ömmu þegar ég var fíögurra eða fímm ára Við fór- um í heimsókn til pabba. Hann var að læra þar. Það var um vetur og við vorum bara í viku. Ég hef líka farið tvisvar hringveginn, í fyrra og fyrir nokkrum árum.“ - Hvað gerir þú í tóm- stundum? „Það er svo margt. Ég safna veggmyndum og úrklippum. Ég hef æft fimleika. Ég lék mér líka oft við hamsturinn minn en hann dó í morgun.“ - Það þykir mér leitt að heyra. Var hann orðinn gam- all? „Nei, hann var bara eins árs. Ég hafði átt hann í þrjá mánuði. Já, hann var oftast í búri en stundum leyfði ég honum að hlaupa um í rúm- inu mínu. Hann gat hlaupið mjög hratt og það var erfítt að ná honum.“ Þökk fyrir spjallið, Eyja- meyjar. KH. ÆSKAIT 23

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.