Æskan

Volume

Æskan - 01.08.1989, Page 33

Æskan - 01.08.1989, Page 33
Kátur og Kútur Kútur hefur fundið stóran hjólbarða. Hann og vinir hans gera sér að leik að setjast inn í það og skoppa niður brekku! - Þetta er gaman! hrópar Kútur til Káts sem kominn er á vettvang. - Má ég líka? spyr Kátur en Kútur leyfir honum það ekki og Kátur gengur gramur á brott og hugsar bróður sínum þegj- andi þörfina. Slangan spyr af hverju hann sé dapur í bragði. - Æ, hann Kútur vill ekki leyfa mér að skoppa í hjólbarðan- um, svarar Kátur. - Vertu ekki leiður yfir því. Ég skal hjálpa þér, segir slangan. Hún hringar sig og segir við Kát: - Komdu og sestu, nú skulum við skoppa saman! Þau skoppa á mikilli ferð fram hjá Kúti sem horfir á eftir þeim öfundaraugum. Ráðhildur Rós Æskan 33

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.