Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1989, Blaðsíða 35

Æskan - 01.08.1989, Blaðsíða 35
121 Reykjvík. Snyrtifræði og RitarasKólinn Ágæti Æskupóstur! Ég vil byrja á því að þakka fyrir ágætt blað og þá sérstaklega Æsku- póstinn því að hann er eftirlætisefni mitt í Æskunni. Mig langar til að biðja þig um að svara nokkrum spurningum um framhaldsnám. Svörin gætu orðið til þess að ég (og kannski aðrir) gæti loks ákveðið að hverju ég sný mér eftir nám í 9. bekk. 1. Hvert er inntökuskilyrði í Skrif- stofu- og ritaraskólann? 2. Er aðeins ein braut í skólanum? 3. Hve langt er námið? 4. Hvaða námsgreinar lærir maður á viðskiptabraut, hagfræðibraut og málabraut í framhaldsskólum? 5. Er nám á þessum brautum ein- göngu undirbúningur fyrir frekara nám eða veitir stúdentspróf frá þeim einhver réttindi? 6. Hvað tekur nám í snyrtifræði lang- an tíma og hvers konar förðun er kennd? 7. Er hægt að læra hand- og fótsnyrt- ingu hér á landi? 8. Hvernig afla ég mér upplýsinga um erlenda skóla þar sem kennd er snyrtifræði? Með þökkum fyrirfram, Kata. Svör: 1. 18 ára aldur og grunnskólapróf eða annað samsvarandi. 2. -3. Námstími er tveir vetur. Kennt er frá septemberbyrjun til maíloka - en einnig er hœgt að nema frá því í janúar til síðari hluta júlímánuðar. Fyrri veturinn stunda allir sama nám en þann síðari greinist það í tvö svið, fjármála- og sölusvið. Nemendur skólans sérhœfa sig í skrifstofustörf- um og fá góða þjálfun til þeirra. Upp- lýsingar um námið eru veittar í s. (91-) 10004. 4. Námsgreinar eru margar og ráðlegt að afla sér upplýsinga í þeim skóla sem nemandi hyggst stunda nám í. 5. Það er undirbúningur fyrir nám á háskólastigi. 6. -8. Snyrtifrœði er löggild iðngrein. Hún er kennd í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Námið tekur fimm annir - tvo og hálfan vetur. Til að fá rétt- indi í greininni þarf jafnframt að vinna á snyrtistofu í tíu mánuði sam- kvœmt samningi við snyrtimeistara. Að loknu bók- og verklegu námi er tekið sveinspróf. Margir munu hafa áhuga á þessu starfi en snyrtistofur eru fremur fáar. Því er ekki auðvelt að „komast á samning“. Kennd er öll algeng förðun; undir- stöðu- og andlitsförðun; förðun fyrir daglegt líf og kvöldforðun. Hœgt er að nema haitd- og fótsnyrtingu hér- lendis en ekki fótaaðgerðir. Félag íslenskra snyrtifrœðinga (s. 26099) er aðili að alþjóðasamtökum. Skólar verða að hljóta viðurkenningu þeirra til að geta menntað fólk í snyrtifrœðum - svo að mark sé tekið á. Samkvœmt upplýsingum Ingibjarg- ar Andrésdóttur, formanns félagsins,' eru þeir skólar, sem þú nefndir í bréf- inu, ekki á skrá yfir viðurkenndar námsstofnanir. Úr ýmsum áttum Æska mín góð! Þökk fyrir mjög góð blöð. Ég sendi þér spurningar, ábendingar og upp- lýsingar! 1. (Spurning) Á hvaða braut eða í hvaða skóla þarf maður að fara til að verða snyrtifræðingur? 2. (Spurning - beiðni) Viltu vera svo væn að birta nokkur heimilisföng bandarískra unglingablaða? Maður verður æfa sig í ensku. . . 3. (Ábending) Hvernig væri að birta myndir af Hófí, Lindu, Önnu Mar- gréti, Hugrúnu Lindu og fleiri feg- urðardrottningum er þær voru á fermingaraldri? 4. (Spurning - beiðni) Gætuð þið geflð einhverjar upplýsingar um fólk- ið sem leikur í þáttunum Santa Barb- ara? 5. (Upplýsingar) Nokkur heimilis- föng aðdáendaklúbba frægs fólks: Paula Abdul, do Siren Records, 61 Portobello Road, London Wl, England. Patrick Swayze, do PMK, 8436, West 3. Street, Suite 650, Los Angeles, CA 90048, U.S.A. Inxs, c/o Apco Records, 75 Rockefeller Plaza, New York, NY 10019, U.S.A. Rob Lowe, do Tim Wood, 8672 Lookolit Mt., Los Angeles, CA 90045, U.S.A. Charlie Sheen, do Jeff Ballard, 4620 Caster Avenue, 211 Sherman Oaks, CA 91403, U.S.A. Madonna, 2 East 54 Streeet, New York, NY 10022, U.S.A. Bon Jovi Secret Society, PO Box 4843, San Fransisco, CA 944101, U.S.A. Tom Cruise, Creative Artists, 1885 Century Park East, Suite 1400, Los Angeles, CA 90067, U.S.A. 6. (Kveðjustund) BLESS, Inga Heiða, Miklabœ, 565 Hofsós. Svar: 1. Sjá svar við öðru bréfi. 2. Því miður höfum við aðeins póst- fang enskra barna- og unglingablaða. Sjá greinina: „Að skrifast á. . .“ 3. Það gœti verið gamait. 4. Tekið til athugunar. 5. Þökkfyrir upplýsingarnar! Æskan 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.