Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1993, Blaðsíða 9

Æskan - 01.01.1993, Blaðsíða 9
Verðlaunasagan: AÐALBJÖRG OG SVALAN GÓÐA - eftir Helgu Sigríði Þórhallsdóttur 11 ára I henni að gerast saumakona hjá sér. Hún tók því boöi. Það fyrsta sem hún saumaði var skyrta sem ljómaði af ham- ingju. Orðin farsæld og ham- ingja stóðu upp úr hverjum vasa. Allt í einu hrökk hún upp við það að húsbóndinn kom fram aö fá sér vatnsglas. Hann sá Aðalbjörgu sitjandi á gólfinu og sagði við hana: „Þú sást líklega að bælið þitt var upptekið?" „Já, reyndar sá ég það." „Nú skal ég gefa þér gott ráð: í nótt skaltu læðast út og fela þig. í fyrramálið skaltu svo leggja af stað út úr bæn- um og ffeista gæfunnar ann- ars staðar. Hér í þessum bæ bíður þín ekkert. En áður en þú ferð máttu taka með þér það sem þú vilt af eigum þín- um og þrjá hluti til viðbótar. Af eigum sínum tók Aðal- björg teppið sitt, hatt móður sinnar, lítinn fataböggul, stíg- vél af föður sínum, sparifé sitt, ljósmynd af foreldrum sínum, kerti í kertastjaka og eldfæri. Svo valdi hún sér hest með öllum reiðtygjum, stóran og góðan bakpoka, og lítinn blómapott með grein af trénu góða. Svalan slóst fús í för með henni. Húsbóndinn kvaddi Aðal- björgu og óskaði henni alls góðs og svo lagði hún af stað. Hún faldi sig í útjaðri bæjar- ins og snemma um morgun- inn lagöi hún af stað. Þegar hún var komin langt frá bænum bar hana að skógi nokkrum, dimmum og drungalegum. Hún var orðin þreytt og lagðist niður og var nærri sofnuð þegar hún heyrði allt í einu sagt einhvers staðar í myrkrinu: „Komdu sæl, Aðalbjörg. Ég bjóst við þér!" „Hver ert þú og hvernig vissir þú um mig?" „Ég er skógarálfurinn. Þú veist líklega ekki að hver sá sem ætlar í gegn um þennan skóg þarf að leysa tvær þraut- ir til þess að fá að komast leiðar sinnar?" „Nei, það vissi ég ekki," svaraði Aðalbjörg um leið og hún virti fyrir sér álfinn. „Hverjar eru þær?" „Þú átt að segja mér hvað fuglarnir í skóginum eru margir og koma með svarið klukkan þrjú á morgun að þessu tré." Svo fór álfurinn leiðar sinn- ar. Aðalbjörg settist niður og hugleiddi hvernig hún ætti að fara að þessu en þá heyrðist í svölunni: „Ég get kannski hjálpað þér því að fuglamir hræðast mig ekki." „Ef þú getur það þá verð ég þér þakklát ævilangt." Svalan lagði nú af stað. Næsta morgun kom hún aftur og sagði við Aðalbjörgu: „Fuglarnir í skóginum eru sjötíu og þrír." Klukkan þrjú hitti Aðal- björg skógarálfinn og sagði honum tíðindin. „Þú gast ráðið fram úr þess- ari þraut. En hvernig ætli þér gangi með þá næstu? Þú átt að binda band utan um hvert einasta tré í skóginum! Hér er svo bandið og gangi þér vel! Þú færð tvo klukkutíma!" Aðalbjörg byrjaði að binda. Hún batt og batt. En þá kom svalan góða með dágóðan hóp af fuglum sem hjálpuðu henni og var hún búin eftir hálftíma. Álfurinn var hissa á þessu en samt fékk Aðalbjörg að fara leiðar sinnar. Snemma næsta dag var hún á göngu meðfram tjöm í bæ nokkrum þegar hún sá mann úti í vatninu. Hann buslaði og svamlaði og hróp- aði á hjálp. Hún kastaði þá til hans afgangnum af bandinu sem hún hafði notað við að binda utan um trén og dró hann á land. Maðurinn þakk- aði henni fyrir og spurði hana um nafn og atvinnu. Hún sagðist heita Aðalbjörg og vera atvinnulaus. Þá bauð hann henni að gerast sauma- kona og tók hún því. Seinna giftust þau og lifðu góðu lífi til æviloka. Æ S K A N 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.