Æskan - 01.01.1993, Side 55
tilfinningar sínar, talað um
söknuðinn, létt á hjarta sínu í
trúnaði og borið saman bækur
sinar við aðra. Þú ert greini-
lega á þessari leið.
Ég skil vel að þú hafir orðið
reið og sár þegar þú last um
einhvern sem þér fannst ekki
kunna að meta það að eiga
mömmu á lífi. Boðskapur þinn
til hinna krakkanna er: „Notið
tímann vel með foreldrum ykk-
ar á meðan þið hafið þá hjá
ykkur og gerið ykkur ekki rellu
út af smámunum. “
Skriftin er skýr og örugg og
gæti borið vott um staðfestu
og nákvæmni.
HEIMÞRÁ
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég hef skrifað áður en því
bréfi var ekki svarað. Vertu svo
góð að svara mér núna!
1. Ég er tfu ára og átti einu
sinni heima í kaupstað fyrir aust-
an. En núna eigum við fjölskyld-
an heima fjarri þeim stað og ég
er með mikla heimþrá eftir að við
fluttum. Mérfinnst allt leiðinlegt.
Ég hef breyst, er orðin leiðin-
leg, skrökva mikið og ef ég er
reið eða í fýlu þá endar það með
því að það bitnar á öllum.
Vertu svo góð að svara mér
áður en ég ærist af heimþrá.
2. Ég á eina systur og þegar
hún er með vinkonu sinni þá
segir hún bara Ijót orð við mig og
spillir svo vinkonu minni.
Hvað lestu úr skriftinni?
Stelpan.
Svar:
Ég las bæði bréfin frá þér.
Það var gott hjá þér að gefast
ekki upp á skriftunum þó að
svarið léti á sér standa.
Það líður alltaf nokkur tími,
stundum mánuður eða meira,
frá því að þið sendið bréfin
þangað til ég geng frá þættin-
um. Því miður er ekki hægt að
svara nema örfáum bréfum
hverju sinni. Þess vegna er
skynsamlegra, t.d. ef um að-
kallandi vandamál er að ræða,
að snúa sér annað en að bíða
upp á von og óvon í margar
vikur eftir að bréfinu verði
svarað íÆskuvanda.
En sjálfsagt er að lesa þátt-
inn vel þó að bréfið, sem sent
var, sé þar ekki að finna - því
að oft er fjallað um vandamái
sem mörg börn og unglingar
eru að glíma við og þá geta
kannski fleiri nýtt sér svörin.
Þú ert í þeirri stöðu að vera
10 ára barn og ræður þar af
leiðandi ekki miklu um búsetu
fjölskyldunnar. Yfirieitt velja
foreldrar búsetu vegna atvinnu
eða menntunarmöguleika.
Sumir velja þó einnig stað
vegna tengsla við átthaga og
skyldfólk. Það kemur ekki fram
hjá þér hvernig það er í ykkar
tilfelli.
Foreldrar gera sér ekki
alltaf grein fyrir hve erfitt það
getur verið fyrir börn að skipta
um umhverfi. Það reynir á
marga þætti. Sumir krakkar
eiga auðveit með að kynnast
nýjum félögum en aðrir ekki.
Það er líka margt að varast
þegar komið er í nýtt umhverfi.
í sumum hverfum eru nýir
krakkar teknir fyrir og látnir
finna að þeir komi utan frá.
Sums staðar finnst börnum í
bekknum og hverfinu mjög
spennandi að fá nýja krakka í
hópinn og þau eru forvitin um
hagi þeirra. í þessum efnum er
langbest að fara sér hægt og
reyna að láta það ekki fara í
taugarnar á sér þó að gangi
seint að finna góða vini.
í tengslum við búsetuskipti
verða líka oft miklar breytingar
á tengslum innan fjölskyldunn-
ar. Þetta gæti átt við um þig og
systur þína. Þið þurfið að
ræða þessi mál á heimilinu og
reyna öll að hjálpast að við að
særa ekki hvert annað, ef til
vill af misskilningi.
Breytingarnar á þér sjálfri
geta líka tengst aldrinum. Þú
mátt kannski ekki tengja allt
búsetunni. Samband ykkar
systranna getur hafa breyst
vegna aldurs ykkar. Það er oft
sem bil á milli systkina eykst
með aldrinum og á meðan það
er að gerast getur verið að
samkomulagið sé ekki alltaf
sem best. Ég held að þú verðir
að gæta þess að verða ekki of
föst í þessu með búsetuna og
ræða málið heima. Ég held að
þú þurfir líka alveg nauðsyn-
lega að komast í sumar í heim-
sókn austur og halda við
tengslunum þangað. Það gæti
hjálpað þér mikið í þessum
breytingum.
MIKIL ÁST
Kæra Æska!
Ég er í miklum vanda. Það
byrjaði þegar ég var nýorðin átta
ára að sumri til og ég var að
leika mér rótt eins og önnur börn.
Þá sá ég tvo stráka vera að leika
sér og fékk að vera með.
Allt sumarið var ég með þeim
og varð ástfangin af öðrum
þeirra og hann varð ástfangin af
mér. Við vorum saman í sex vik-
ur og allt gekk mjög vel.
En síðan byrjaði skólinn og
hann fluttist brott. Einu og hálfu
ári síðar kom hann aftur og fór í
sama skóla og ég. En þegar ég
talaði við hann var hann breyttur.
Það var alveg eins og hann
þekkti mig ekki. Hann vissi alveg
hver ég var en vildi ekki láta vini
sína vita að hann hefði verið
með mér.
Nú er ég tíu ára og hann ell-
efu ára. Hann hefur einu sinni
kysst mig síðan hann kom aftur.
Ég er farin að fá martraðir vegna
hans og vakna oft um miðja nótt.
Og þegar ég er ein fer ég að
gráta svo að augu mín verða
rauð af tárum.
Gerðu það, Æska,
hjálpaðu mér!
Ungfrú ástfangin.
Svar:
Þú ert nú í yngsta lagi til að
gráta úr þér augun í ástarsorg.
Ég held að þú blandir þarna
saman því að vera góðir vinir
og væntumþykjunni, sem fylg-
ir því, og því að vera ástfangin.
Þetta eru náskyldar tilfinningar
en ekki þær sömu. P er greini-
lega feiminn við þig og engan
veginn tilbúinn til þess að
nálgast þig núna. Reyndu að
taka því og eignast fleiri góða
vini og vinkonur og sjá til
hvernig málin þróast.
Kærar þakkir fyrir
Æ S K A N 5 9