Æskan - 01.01.1993, Side 27
MEISTARI
Michael Jordan er um þess-
ar mundir ókrýndur kon-
ungur körfuknattleiks-
manna. Hann var fyrstur valinn
mikilvægasti leikmaður í úrslita-
leikjum tvö ár í röð. Hann leiddi lið
Chicago Bulls til sigurs í annað
skipti í röð í fyrra. Meðalskor hans
var þá 34,5 stig - 35,8 í úrslita-
leikjunum. Hann hefur sex sinnum
orðið stigahæsti leikmaðurinn í
deildinni - og jafnar met Wilts
Chamberlains ef honum tekst að
skora mest allra í vetur. Hann hef-
ur skorað sex þriggja stiga körfur í
einum úrslitaleik - og með því
jafnað fyrra met.
Michael er tæplega þrítugur,
fæddur 17. febrúar 1963. Hann er
6 fet og 6 þumlungar á hæð -1.98
m - 90 kg. Hann er í flokki fimm
bestu varnarmannanna - er sífellt
atkvæðameiri undir körfunni en
skorar þó í 51.9% af skotum.
Hann er ótrúlega snjall á velli og
getur brugðið flestu fyrir sig.
Hann hefur tvisvar sinnum orð-
ið bandarískur menntaskólameist-
ari (All American). Hann var í far-
arbroddi í liði Norður-Karólínu er
það sigraði í NCCA-kepninni 1984
og var í sigurliði Bandaríkjanna á
Ólympíuleikunum sama ár.
Hann er meðal þekktustu og
virtustu íþróttamanna heims -
þykir gefa gott fordæmi einnig
utan vallar og vera góð fyrirmynd
ungu fólki. Hann hefur verið í fylk-
ingarbrjósti samtaka sem hvetja
skólanema í Bandaríkjunum, ekki
síst þeldökka, til að halda áfram
námi og sinna því vel til að búa sig
sem best undir lífsstarf sitt.
TEIKNAÐU
MEISTARANN
- OG LÝSTU
HONUMí
ÖRFÁUM
ORÐUM!!
SAMKEPPNIÆSKUNNAR
OG KRINGLUSPORTS
Verðiaun:
1. Nike-skór eins og
Michael Jordan notar!
2. -4. Bolir
- úr versluninni Kringlusporti
5.-10. Veggmyndir
- úr Kringlusporti
Hvernig væri að teikna Michael í
körfuknattleik - og lýsa því með
örfáum orðum hvað þér finnst ein-
Miohael Jordan
kenna hann sem leikmann? Það er þess virði að reyna
því að góð verðlaun eru í boði.
Teikningar verða sýndar á vegum Kringlusports í
göngum Borgarkringlunnar í Reykjavík. Fólk sem versl-
ar þar greiðir atkvæði um þær og lokaniðurstaða bygg-
ist á atkvæðum þess og mati sérstakrar dómnefndar.
Myndir - og lýsingar- skal senda til Æskunnar,
pósthólf 523,121 Reykjavík. Umslagið á
að merkja: Meistarateikning.
Skilafrestur er til 5. mars nk.
Úrslit verða tilkynnt í 3. tbl. Æskunnar sem
kemur út 5. apríl.
Æ S K A N 2 7