Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1993, Page 14

Æskan - 01.01.1993, Page 14
Þorgrímur Þráinson meö Kristófer sonsinn Æskan ræöir við Þorgrím Þráinsson, blaðamann, rithöfund og fyrrverandi knattspy rnumann um bækurnar, boltann og blaöamennskuna. Viðtal: Elísabet Elín. Myndir: Odd Stefán. „HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR“ orgrím Þráinsson þarf varla að kynna fyrir lesendum Æskunnar. Flestir þekkja hann, annaðhvort af knattspyrnu- vellinum, af greinum og viðtölum hans eða sem metsölurithöfund. Hann var þekktur knattspyrnumað- ur í 12 ár, lék með Val og einnig með íslenska landsliðinu. Þorgrímur hefur verið blaða- maður í 8 ár og eru öll viðtöl sem ég hef lesið eftir hann einstaklega skemmtileg. Það er gaman að lesa þau aftur og aftur. Hugleiðingarnar á undan þeim eru frumlegar og skemmtilegar. Þorgrímur segist stundum hafa sett þar ýmislegt frá eigin brjósti og það hafi verið kveikjan að því að hann gerðist rithöfundur. Hann hefur samið fimm bækur og allar hafa þær náð hátt á metsölulista, tvær komist ífyrsta sæti. Það er því ekki orðum aukið að Þorgrímur sé fjölhæfur og ekki að ástæðulausu að Æskan fær hann til að koma í viðtal. Hann fellst á það þótt hann sé búinn að ákveða að fara ekki í nein viðtöl eftir ára- mót. Ég spyr hann fyrst hvenær hann hafi byrjað í íþróttum: „Ég byrjaði í spjótkasti þegar ég var krakki í sveit. Boltasparkið hófst ekki af alvöru fyrr en ég var 10 ára og fluttist til Ólafsvíkur. En þegar maður átti heima úti á landi æfði maður í flestar greinar, t.d. var ég í glímu, hlaupi, sundi, spjót- kasti, fótbolta og körfubolta...!“ - Hvaða íþróttir hefurðu æft og með hvaða félögum? —„Ég byrjaði að æfa fótbolta með Breiðabliki en lék aðeins einn leik með þeim. Svo fór ég að æfa af alvöru með Víkingi í Ólafsvík, lék með þeim frá því ég var tíu ára til tvítugs. Ég spilaði svo með Val frá 1979 til 1990 og síðan með Stjörnunni síðastliðið sumar. Svo hef ég einstöku sinnum kastað /4 æ s K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.