Æskan - 01.01.1993, Síða 26
NASHYRNINGUR
í FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS!
Ottó nashyrningur er afar vina-
leg skepna, einkum með tilliti
til þess að hann er nashyrn-
ingur. Það breytir hins vegar ekki
því að hann getur ekki dvalist á
þriðju hæð í fjölbýlishúsi, sérstak-
lega ekki þar sem gæludýr eru illa
séð.
Um þetta vandamál m.a. snýst
saga Ole Lunds Kirkegaards, Ottó
nashyrningur, sem Leikfélag Kópa-
vogs færir upp í Félagsheimili
Kópavogs um þessar mundir í
leikgerð ungs Kópavogsbúa, Harð-
ar Sigurðarsonar. Annar ungur
Kópavogsbúi, Jósep Gíslason, hef-
ur samið tónlist við söngtexta
Harðar en leikstjóri er Þórunn
Magnea Magnúsdóttir.
Ottó nashyrningur er fjórða
verkið sem Leikfélagið kemur á
fjalirnar eftir sögu Kirkegaards og
ekki að ástæðulausu því að hin
þrjú hafa notið fádæma vinsælda
barna á öllum aldri.
Eins og undanfarin 35 ár leggur
Leikfélag Kópavogs metnað sinn í
að setja á svið vandaða barnasýn-
ingu. Af eftirminnilegum leikritum
má nefna Línu langsokk, Rauð-
hettu, Húsið í skóginum, Snæ-
drottninguna, Gúmmí-Tarzan,
Fróða og alla hina gríslingana - og
í Súrmjólkurþorpi.
Félagar í Leikfélagi Kópavogs
hafa lært að börn eru þakklátir á-
horfendur sem gaman er að fá í
húsið en um leið eru þau kröfuhörð
og láta ekki bjóða sér neitt rusl.
Vitaskuld er reynt að koma til móts
við þær kröfur, bjóða upp á ærlega
skemmtun og ekkert múður!
2 6 Æ S K A N