Æskan - 01.01.1993, Page 40
skil ásamt íslensku dagblöðun-
um. í bókinni er fullyrt að fréttin
hafi verið sölubrella og skrök-
saga.
Höfundur bókarinnar, Árni
Matthíasson, er blaðamaður hjá
Morgunblaðinu. Víða skýtur upp
kollinum metingur Morgunblaðs-
mannsins gagnvart helsta keppi-
nautnum, DV. Að öðru leyti skrif-
ar Árni bókina í þægilegum og
beinskeyttum blaðamannsstíl.
Honum tekst að sneiða listavel
fram hjá óþörfum útúrdúrum og
óþörfum útskýringum. Pess í
stað er hann fundvís á smáatriði
sem skreyta sjálfa söguna á
skemmtilegan hátt. Dæmi um
það er Ijósmynd frá 1986 sem
sýnir Steingrím Hermannsson
þáverandi utanríkisráðherra taka
á móti Carrington lávarði fram-
kvæmdastjóra NATO. Um leið og
lávarðurinn stígur fæti á Reykja-
víkurflugvöll bendir hann ráðherr-
anum á grein um Sykurmolana í
breska dagblaðinu Independent.
Bókin dregur upp skýra mynd
af einstaklingunum sem skipa
Sykurmola-sextettinn, jafnframt
því sem saga hljómsveitarinnar
er rakin. Þetta er saga um ævin-
týralegan frama íslenskra popp-
ara í útlöndum, poppara sem
sniðganga uppskrift markaðs-
fræðinnar þegar hún stangast á
við metnað þeirra í að skemmta
sjálfum sér. Hún greinir líka frá
mótlæti og átökum innan hljóm-
sveitarinnar.
Við lestur þessarar bráð-
skemmtilegu og vel hepþnuðu
bókar um Sykurmolana er eins
hlutar sárt saknað: ítarlegs lista
yfir plötur þeirra.
B
SV
Nýverið kom á markað bókin
Sykurmolarnir eftir Árna Matthí-
asson. Bókin gefur okkur mynd
af því sem gerist á bak við sviðs-
tjöldin hjá heimsfrægri íslenskri
hljómsveit. Margt forvitnilegt er
dregið fram í dagsljósið. T.a.m.
eru spaugilegar frásagnir af því
hvernig Sykurmolarnir spiluðu
með breska fjölmiðla og útsend-
ara útlendu plöturisanna í upp-
hafi frægðarferilsins um og upp
úr 1987.
í þeim frásögnum og öðrum
kemur fram að almenningur fær
ekki alltaf sanna mynd af raun-
veruleikanum í fréttapistlum fjöl-
miðlanna. Bókin er hafsjór af
uppljóstrunum um slíkt.
Dæmi: í vetrarbyrjun slógu
ensku músíkblöðin upp frétt um
yfirvofandi lögbann á plötu Syk-
urmolanna með laginu „Top of
The World“. Ljósvakamiðlar hér-
lendis og erlendis (m.a. MTV-
sjónvarpið) gerðu fréttinni góð
FJ
VF
LÞJOÐLEGT
BRflGÐ
Titill: Einn hattur
Flytjandi:
Hljómsveitin Orgill
Útgefandi: Einn hattur
Mjúkt og fínlegt popp hlaðið
framandi og aðlaðandi blæ. Yfir-
bragðið er fjölþjóðlegt. Auðheyri-
legust eru áhrif frá afrísku poppi.
Einnig má greina keim af frönsku
nýrokki og bandarísku létt-fönki.
Textar eru á íslensku, ensku og
að því er virðist tilbúnu bullmáli
sem sviþartil afrískra tungumála.
Enskir söngtextar hljóma jafn-
an ósannfærandi og vandræða-
legir á íslenskum plötum. Svo er
ekki á Einum hatti. Ástæðan er
náin tengsl Orgill-kvintettsins við
útlendinga. í því sambandi nægir
að nefna textahöfundinn Michael
Pollock, eiginmann söngkonunn-
ar, Hönnu Steinu. Hann er fædd-
ur og uppalinn í Bandaríkjum
Norður-Ameríku.
„Bjartur" og líflegur söngstíll
Hönnu Steinu er aðalsmerki Org-
ills. Þar munar mestu um fimlega
notkun á falsettutónum. Að því
leyti og öðru minnir söngurinn
um margt á söng Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur, systur Hönnu
Steinu.
Góðum söng er fylgt þétt eftir
af einni samhæfðustu popp-
hljómsveit landsins - enda hafa
hljóðfæraleikararnir starfað lengi
saman, m.a. í rokksveitinni
Rauðum flötum.
Orgill er tvímælalaust einna
fremst í flokki íslenskra hljóm-
sveita um þessar mundir. Hljóm-
leikar hennar staðfesta það
reyndar ekki síður en Einn hatt-
ur.
Bestu lög:
Aksjón og Kóngsi.
Einkunn:
8,5 (fyrir lög),
4,0 (textar),
9,0 (túlkun) = 7,5
ÞJÓÐLRGnHENNT
NVROHH
Titill: Drápa
Flytjandi: Hljómsveitin Kol-
rassa krókríðandi
Útgefandi: Smekkleysa
Keflvíska kvennarokksveitin
Kolrassa krókríðandi var sigur-
vegari Músíktilrauna 1992. Á
Drápu heyrist hvers vegna. Kol-
rassa er einfaldlega ferskasta ís-
lenska nýliðarokksveitin um
þessar mundir.
Galsafengið Kolrössu-rokkið
er einfalt, hrjúft, hrátt og raf-
magnað. Hljóðfæraleikur er
keyrður áfram af krafti og spila-
gleði, fremur en tækni. Söngkon-
an, Elíza M. Geirsdóttir, virðist
búa yfir mestri færni á hljóðfæri
sitt, fiðlu. Eðlilega fær fiðluleikur-
inn þess vegna að einkenna Kol-
rössu-rokkið. Fyrir bragðið er
sterkur þjóðlagakenndur blær á
músíkinni. Sá blær er studdur í
söngtextum (og nafni hljómsveit-
arinnar sem sótt er í íslenskar
þjóðsögur). Annars leynir sér
ekki að Kolrössu-kvartettinn
hlustar á frísklegustu nýrokk-
sveitir Bretaveldis. Til viðbótar
bregður indverskum tónum fyrir í
lokalaginu, Sýnum Kolrössu.
Annað skemmtilegt einkenni
Kolrössu-rokksins er hvellt öskur
sem Elíza rekur upp á stöku stað
í bland við annars blíðlegan
söngstíl.
Bestu lög: Hrafn, Vögguvísa
og Sýnir Kolrössu.
Einkunn:
6.5 (lög),
4.5 (textar),
9,0 (túlkun) = 7,0
PLÖTUDOMRR
4 4 Æ S K A N