Æskan - 01.01.1993, Page 44
STUND í MYNTSAFNÍNU
íslensk mynt og seðlar, íslenskir vöruseðlar
og brauðpeningar, minnispeningar,
heiðursmerki, orður
- erlend mynt sem tengist íslenskri sögu.
Myntir hafa verið slegnar síðan á 8. öld f.Kr. og
eru meðal frumheimilda um menningar- og verslunar-
sögu fyrri alda. i Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminja-
safns eru nú um sextán þúsund myntir.
Stofninn I myntsafninu er íslensk mynt og seðlar
og erlendir peningar frá fyrri öldum. Meðal sýningar-
efnis eru peningaseðlar frá 18. öld, sem heimilt var að
nota hér á landi, og síðan allar gerðir innlendra seðla
frá upphafi íslenskrar seðlaútgáfu árið 1886.
Safn af skemmtilegum fróðleik.
Opið á sunnudögum kl. 14-16 og á öðrum
tímum fyrir hópa eftir samkomulagi.
Sérfræðingur er til leiðsagnar. Aðgangur ókeypis.
MYNTSAFN
Seðlabanka og Þjóðminjasafns
Einholti 4 Reykjavík Sími 69 99 64.
I
Frímerkjasöfnun 10o°
er skemmtilegt
áhugamál
Frímerkjasöfnun er bæði skemmtilegt og
fræðandi áhugamál. Hún er krefjandi, en
ánægjan er fyrirhafnarinnar virði.
Þjónusta við safnara
Póstur og sími starfrækir söludeild fyrir safnara
og hún heitir einfaldlega Frímerkjasalan.
Söludeildin annast alla þjónustu við
frímerkjasafnara.
Vertu áskrifandi!
Ef þú vilt fá ný frímerki reglulega er best fyrir
þig að vera áskrifandi að ákveðnum fjölda
fyrstadagsbréfa og/eða frímerkja. Öll frímerki
eru seld á nafnverði.
Ef þú ert safnari geturðu fengið slíkar fastar
pantanir afgreiddar gegn póstkröfu, þér að
kostnaðarlausu.
Hafðu samband
við Frímerkjasöluna
ef þú vilt gerast áskrifandi
eða fræðast nánar um starfsemina.
Frímerkjasalan hefursíma 636052, pósthólf
8445, 128 Reykjavík. Frímerkjasalan ertil húsa
í Póstmiðstöðinni í Ármúla, en söludeild
hennar er opin alla virka daga
í pósthúsinu í Austurstræti 5 (R-1).
FRIMERKJASALAN
PœjJEHIL
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík
POSTUR OG SIMI