Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1993, Qupperneq 51

Æskan - 01.01.1993, Qupperneq 51
I Kristján missti eftirlætislampann hennar mömmu sinnar í gólfið og braut hann. Gætir þú orðið Krist- jáni að liði við að finna réttu brotin til að hann geti límt lampann saman aftur? Hvað sérð þú á þessari mynd? Tvö andlit eða vasa? Gullloss FRÍMERKJAKLÚBBUR ÆSKUNNAR Umsjón: Siguröur H. Þorsteinsson. NÝIR FÉLAGAR -FELAGASKRÁ nn hefst hjá okkur nýtt starfsár og að þessu sinni bjóðum við velkomna nýja félaga í klúbbinn. Annar skrifar: „Mig langar að gerast þátttak- andi í Frímerkjaklúbbi Æskunnar. Ég hefi safnað frímerkjum í rúmt ár og á orðið þrjár bækur nánast alveg fullar. Svo á ég líka mjög mikið af frímerkjum sem ég á eftir að setja í bók svo að þær verða fleiri." Þarna er því mikið efni til að skipta á og eignast mismunandi frímerki fyrir. Þetta skrifar: 79. Helga Jenný Stefánsdóttir, Eskihlíð 14,105 Reykjavík. Hinn félaginn safnar frímerkjum frá öllum heimshornum. Það er: 80. Margrét Baldvinsdóttir, Víðihlíð 13, 550 Sauðárkróki. En nú þegar fullorðna fólkið er búið að ná af sér aukakílóunum eftir jólamáltíðirnar þá er tími kominn til fyrir okkur að taka fram aukafrímerkin og fara að skrifast á við aðra klúbþfélaga og skipta á frímerkjum. Þið megið gjarnan skrifa mér nokkrar línur og segja mérfrá hvernig það gengur. Þá vil ég benda ykkur á að skrá yfir alla félaga klúbbsins er í eftir- farandi blöðum: 8.tbl.1992, 5.tbl.1992 og svo aðalskráin í 4.tbl.1992 en þar eru félagar núm- Matthías Jochumsson er 1-55. Þá er einnig að finna nöfn erlendra safnara í þessum sömu blöðum ef þið treystið ykkur til að skrifast á við þá. FRÍMERKI OG NÁM Af öllu þessu getið þið séð að úr nógu er að velja ef þið viljið vera dugleg við frímerkjasöfnun- ina. Mig langar til að benda ykkur á að það getur verið skemmtilegt að safna frímerkjum sem snerta á einhvern hátt það sem þið eruð að læra í skólanum. Ef þið eruð að læra Ijóð eftir Matthías Jochums- son, til dæmis þjóðsönginn okkar, þá eru til frímerki með mynd af honum og líka fjölda mörgum öðr- um skáldum, íslenskum. Séuð þið að læra um Gullfoss í landafræð- inni þá eru til mörg frímerki með mynd af honum og ýmsum öðrum stöðum á landinu. Þá er tilvalið að skoða þessi frímerki og láta þau minna sig á það sem þið hafið lært um ýmsa staði, menn eða hvað það nú yfirleitt er sem þið hafið lært um. Við getum líka sett frí- merkin inn í vinnubækurnar, sem við notum í skólanum, og skrifað við þau þau atriöi sem við þurfum að ieggja á minnið. Með þessu er frímerkjasöfnunin ekki aðeins orðin okkur skemmtun og tómstundaánægja heldur bein- línis þáttur í því að gera skólanám- ið skemmtilegra og markvissara og skilvirkara, eins og það er kall- að, svo að við geymum betur í minni okkar hvað við vorum að læra um menn og staði. Hugsið þið nú vel um þetta og ef þið hafið einhverjar spurningar þá megið þið skrifa mér og svo ræðum við málið, annaðhvort hérna í blaðinu eða þá bara í bréfi okkar á milli. Gæti það ekki bara orðið gaman? Gangi ykkur vel! Sigurður H. Þorsteinsson, Laugarhóli, 510 Hólmavík. 3AUR Æ S K A N S S

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.