Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1994, Side 5

Æskan - 01.05.1994, Side 5
„Þeir eru fæddir á Landspítalan- um í Reykjavík en fluttust til Kaliforn- íu í lok mars 1991, tæplega þriggja ára. Við foreldrarnir heitum Sigurður Ómar Sigurðsson og Ágústa Hreinsdóttir. Systur þeirra eru íris Ann 9 ára og Sandra Ósk 15 ára.“ - Hvaða atriði í myndinni þykir þeim skemmtilegast? „Þegar Bamm Bamm hleypur í gegnum hurð - Fred leikur keilu og Fred brýtur hurð.“ - Hve lengi voru þeir við mynda- tökur? „Tvo til fjóra daga í viku í þrjá og hálfan mánuð. Um fjórum mánuðum seinna var myndað eitthvað til við- bótar og dálítið tekið að nýju. Þá hófust líka kynningar og viðtöl." KÆRUSTURNAR ÞEIRRA ... - Hvernig líkaði þeim þessi „vinna“? „Þeim fannst þetta gaman. Allir voru mjög vinalegir og góðir við þá og það var alltaf verið að leika við þá. Starfsmaður, sem vann við brúðuleikdýrin í myndinni, var mikill galdrakarl og sýndi krökkunum oft brögðin sín. Elaine og Melanie Silver, tvíbura- systurnar sem léku telpuna Pebbles, eru miklar vinkonur þeirra. Þeir kalla þær kærusturnar sínar! Rosie O’Donnell, sem lék Betty móður Bamms Bamms, var líka sérstaklega skemmtileg og góð við þá.“ - Hafa fjölmiðlar í Bandaríkjunum ekki sýnt þeim mikinn áhuga? „Þeir sátu blaðamannafund í New York í febrúar og í apríl voru þeir í viðtali hjá bresku sjónvarpsstöðinni BBC. Það verður sýnt í Englandi um áramót. Nýlega voru þeir í símaviðtali við blað sem heitir „Variety" og kemur út 30. júní. Það hafa verið birtar myndir með upplýsingum um þá í sjónvarpi hér - í þætti um kvikmynd- ir og skemmtanalíf. En það sem gerir þá mest áber- andi í tengslum við myndina eru vör- ur sem eru með myndum af þeim, svo sem bækur, litabækur, bolir, skólatöskur, strigaskór, sælgæti, pappadiskar og glös - svo að eitt- hvað sé nefnt. Það hafa líka verið búnar til brúður sem líkjast þeim!” - Eitthvað var gert þegar myndin var frumsýnd ... „Já, það var haldið sérstakt sam- kvæmi fyrir þá og telpurnar með gestum þeirra. Það var matarveisla og einkasýning í sal Stevens Spiel- bergs. Hann er hinn glæsilegasti með lúxus-sætum og einkasælgæt- issölu þar sem allt var frítt. Eftir sýn- inguna voru boðnir eftirréttir, ís og sérskreytt kaka með mynd af Stein- aldar-börnunum.“ - Hefur myndin vakið einhver við- brögð sem þið hafið orðið vör við? „Já, það er farið að bera á því. í gær (14. júní) fengu þeir t.a.m. níu aðdáendabréf!" - Verðið þið áfram í Bandaríkjun- um eða eruð þið væntanleg hingað til langdvalar? „Við gerum ráð fyrir að flytjast aft- ur til íslands síðari hluta árs 1995.“ AFTUR MEÐ EF FLEIRI MYNDIR VERÐA GERÐAR ... - Hafa þeir leikið í öðrum mynd- um eða auglýsingum? Hefur verið rætt/samið um leik í öðrum mynd- um? „Þeir voru í blaðaauglýsingum fyr- ir Miklagarð eins og tveggja ára. Samningurinn um myndina gerir ráð fyrir að þeir fái hlutverk stráksins ef framleiddar verða myndir í fram- haldi af þessari. Þeir hafa líka leikið í einni auglýs- ingu fyrir McDonalds." Hafa þeir hitt eitthvað af þekktu fólki öðru en leikurum í myndinni? „Við hittum Charlene Tilton Æ S K A N S

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.