Æskan - 01.05.1994, Blaðsíða 44
POPPHÓLFI0
Popphólfinu og Æskupóstinum hafa
borist fjölmargar beiðnir um kynningar á
Metallica, Rage Against The Machine, 4
Non Blondes, Whitney Houston, 2
Unlimited og Bítlunum. Þessi fyrirbæri hafa
verið kynnt meira og minna í Æskunni und-
anfarna mánuði. Það væri aðeins til að æra
óstöðugan að birta sérstakar greinar um
Metallica eða RATM svo skömmu eftir að
slíkar greinar hafa áður birst í Æskunni
(nema enn þá fleiri óski eftir þvíii).
Hér birtum við aftur á móti samtíning af
fróðleiksmolum um þetta fólk:
• 1983 var sólógítarleikarinn Dave
Mustaine rekinn úr Metallica.
„Það er óþolandi að vinna með fylli-
byttu,“ segir trommarinn, Lars Ulrich.
Dave hefur síðan rekið hljómsveitina
Megadeath með nokkuð misjöfnun ár-
angri. Vímuefnaneysla hans hefur staðið
frama sveitarinnar mjög fyrir þrifum.
• Trymbill Bítlanna, Ringo Starr, spilaði
með Stuðmönnum í Atlavík um verslunar-
mannahelgi á miðjum níunda áratugnum.
Þegar Ringó rölti eitt sinn um skóginn vék
sér skyndilega að honum ofurölvi unglings-
piltur. Áður en fylgdarmenn Ringós vissu
hvaðan á sig stóð veðrið hóf pilturinn
Ringó á loft í faðmlögum og hrópaði:
„Sæll, kæri vinur!“ Við undrunar- og skelf-
ingarsvipinn á Ringó var eins og bráði af
piltinum. Hann losaði faðmlögin og spurði
afsakandi: „Fyrirgefðu, en kenndir þú mér
ekki smíðar á Eiðum ...?“
• 1991 vann Hollendingurinn Ray Sli-
jngaard á daginn sem matsveinn á Schip-
hol-flugvelli í Amsterdam. Á kvöldin „rabb-
aði“ hann á skemmtistöðum. Frægir
belgískir upptökustjórar og plötuframleið-
endur fréttu af rabb-hæfileikum hans og
fengu hann til að hljóðrita lög til hugsan-
legrar útgáfu. í hljóðverinu heyrði Ray strax
að kvenrödd myndi bæta um betur. Hann
fékk Anitu Dels til liðs við sig en hún starf-
aði með kvenpoppsveitinni The Trouble
Sisters jafnframt því sem hún var í fullri
vinnu sem einkaritari.
• Trymbill Rage Against The Machine,
Brad Wilk, var um tíma í Seattle-sveitinni
Pearl Jam. Hann fór m.a. með þeim I
fyrstu hljómleikaferð þeirra um Evrópu.
• Linda Perry, söngkona, gítarleikari og
söngvasmiður 4 Non Blondes, er dóttir
brasilískra innflytjenda í Bandaríkjunum.
Hún starfaði sem blús-farandsöngvari áður
en henni var boðið í kvennarokksveitina 4
Non Blondes.
• Bandaríska söngkonan Whitney Hou-
ston hefur um nokkurra ára skeið verið ein
skærasta poppstjarna heims. Allt frá upp-
hafi söngferilsins hefur hún hafnað sam-
skiptum við fjölmiðlafólk. Hún veitir ekki
viðtöl, situr ekki fyrir hjá blaðaljósmyndur-
um o.s.frv. Þetta er samkvæmt ráði ná-
frænku hennar, Dianna Warwick sem sjálf
er vinsæl söngkona.
• Metallica hóf öskutunnu- og keyrslu-
rokkið (thrash, speed) snemma á síðasta
áratug. Um þetta segir James Hetfield
gítarleikari: „Við vissum ekki að við værum
að hanna nýjan þungarokksstíl. Á fyrstu
hljómleikum okkar varð ég var við að at-
hygli og áhugi áheyrenda á lögum okkar
fjaraði smám saman út. Það var eðlilegt.
Þeir höfðu ekki heyrt lögin áður. Þau runnu
því saman í eitt. Ég reyndi þá að ýta við
þeim með hamagangi og látum inn á milli.
Við það vöknuðu allir og lögðu við hlustir.
Allt í einu var hamagangurinn farinn að
taka á sig fast form án þess að það væri
ætlunin. Og núna reyna þúsundir hljóm-
sveita að spila alveg eins og við lékum
1983!“
• Kvikmyndin „Backbeat" hefur farið
sigurför um heiminn að undanförnu, einnig
hérlendis, enda mjög skemmtileg þó að
jaðri við að hún sé of hrá og klippt í stöku
atriði. í myndinni er kastljósi einkum beint
að fyrsta bassagítarleikara Bítlanna, Stu
Sutcliff, og ferli þeirra áður en þeir urðu
frægir. Vegna vinsælda „Backbeat" halda
margir að um sé að ræða einu Bítlamynd-
ina sem gerð hafi verið. Staðreyndin er sú
að yfir 100 kvikmyndir eru tii um þá félaga
ef taldar eru með myndir sem sýna þá
sjálfa.
• Whitney Houston er talin vera vin-
sælasta söngkona poppsögunnar en Bítill-
inn Poul McCartney er vinsælasti poppari
sömu sögu. Rökin eru þessi:
Fyrsta plata Whitneyjar er söluhæsta
plata kvenmanns. Hún hefur selst í tæpum
20 milljónum eintaka og sett fjölda meta,
t.a.m. að vera fyrsta „frumburðarplata“
söngkonu til að ná efsta sæti bandaríska
vinsældalistans. Fyrstu sjö smáskífur Whitn-
eyjar stukku sömuleiðis allar í efsta sætið.
Aðeins Bítlarnir höfðu áður náð þeim árangri.
Allt í allt hefur tæpur milljarður platna
með Páli McCartney selst, þar af 80-90%
með Bítlunum. Hann er jafnframt tekju-
hæsti poppari heims. Hann er talinn eiga
marga milljarða íslenskra króna undir
koddanum sínum!
•Linda Perry, framvörður 4 Non
Blondes, verður þrítug 15. apríl á næsta
ári. Whitney Houston varð þrítug 9. ágúst
í fyrra.
• Raymond Slijngaard og Anita Dani-
elle Doth, eins og þau í 2 Unlimited dúett-
inum heita réttum nöfnum, eru jafnaldrar.
Hann var fæddur 28. júní en hún 28. des-
ember 1971.
• Ray segist nota öll sín fríkvöld til að
Söngkona 4 Non
Blondes, Linda
Perry, fiktaði
með vimuefni á
unglingsárum.
Það leiddi til
þess að hún datt
ofan af s völum á
þriðju hæð, slas-
aðist illa og var
bundin við
sjúkrarúm i
margar vikur.
Þar náði líkami
hennarað
hreinsa sig af
vimuefnafíkninni
og henni gafst
ráðrúm til að endurskoða lífshætti sína. Niður-
staðan varð sú að hún hefur ekki snert vimuefni
siðan. Þess i stað hóf hún markvissan músíkferil
með þeim árangri að fyrsta og eina þlata hennar
og 4 Non Blondes keppti viða við plötur Bjarkar og
RATM um titilinn „Nýliðaplata ársins 1993“.
Hollenski dúettinn 2 Unlimited
er fulltrúi dansmúsikstils sem
kallast „techno".
Bitlarnir
komu með
fleiri nýjungar
á dægurlaga-
vettvanginn
en nokkrir
aðrir. Ein
þeirra var að
blaðamanna-
fundir breytt-
ust úr form-
legu kurteis-
ishjali i alls-
herjar
„imbakassa“ eða „spaugstofu“. Þeir - sérstaklega
Jón og Ringó - voru svo orðheppnir og fyndnir að
áheyrendur veinuðu af hlátri.
Whitney
Houston hef-
ur aldrei
neytt áfengis
eðatóbaks
og á það
sameiginlegt
með söng-
konunum
Tinu Turner,
Madonnu og
Cher.
4 4 Æ S K A N