Æskan - 01.05.1994, Blaðsíða 28
IAFTURSÆTINU
-ÚÞARFT
AR LÁTA SÉR
ísinn er snæddur á andartaki! Síöan taka
við langar og leiðinlegar stundir í aftursætinu
... Eða hvað?! Kamratposten í Svíþjóð gefur
lesendum sínum góð ráð! Við komum þeim á-
fram til ykkar. Og eflaust getið þið bætt ýmsu
við sjálf.
1* Spilið eða leggið kapal! Að vísu er ekki
alltaf auðvelt að halda spilunum stöðugum í
sætinu en þetta er þó hægt. Tii eru töfl og
fleira með segulstáli (segli) sem heldur mönn-
unum eða skífunum föstum. Sjóræningjaleikur
er tilvalinn. Þá þarf einungis rúðustrikaðan
pappír og blýant. Og einhvern til að spila við
mm% Flettið gömlum Æskublöðum eða öðrum
tímaritum eða lesið bækur - þó ekki of lengi í
einu. Þá getur ykkur orðið óglatt. Leysið allar
þrautir sem þið hafið sleppt að glíma við ...
3. Skrifið bréf. Skriftin verður kannski dálítið
ójöfn en það er bara skemmtilegra! Á mjög
holóttum vegum verður bréfið sennilega ó-
læsilegt...
4. Þið teiknið eflaust ekki eins vel í bíl og á
borðinu heima en gaman er að bera það
saman.
5. Veifið fólki í öðrum bílum - og brosið!
6* Leggið gátur fyrir aðra farþega. Þið
kunnið ýmsar og til eru bækur með gátum -
líka á bókasöfnum.
7• Þið getið farið í marga leiki, t.a.m. stein,
skæri og poka. Flann er þannig: Teljið upp að
þremur og réttið síðan fram höndina. Kreppt-
ur hnefi merkir stein, tveir glenntir fingur skæri
og útrétt hönd poka. Steinninn vinnur skærin
af því að ekki er hægt að klippa hann. Skærin
sigra pokann en pokinn steininn (það má
geyma steininn í pokanum). Gefið stig.
8. Flver sér það fyrst? Stig eru gefin fyrir
kindur, hesta, kýr, fossa, dráttarvélar o.s.frv.
Fyrir kind má t.d. gefa eitt stig, fyrir hest tvö,
foss tíu ... (því fleiri stig því sjaldgæfara sem
er að þetta sjáist). Stig fær sá sem kemur
fyrstur auga á dýrið, hlutinn o.s.frv.
9. Teljið bíla. Flver velur sér lit og telur bíla
þannig lita. Sá vinnur sem sér flesta bíla í sín-
um lit.
10 Þrjónið langan trefil til að nota næsta
vetur!
11* Spreytið ykkur á orðaleikjum. Til eru
margir slíkir leikir og henta vel til að stytta sér
stundir með. T.d. þessi: Frá a til ö. Sá fyrsti
segir: „Skip kemur að landi með appelsínur."
Sá næsti segir: „Skip kemur að landi með
appelsínur og banana." Bæta skal einni teg-
und ávaxta við í hvert sinn - og nefna líka
þær sem hafa verið taldir upp. — Síðan má
nefna dýr, hljóðfæri og ótalmargt annað.
12» Keppist við að nefna heiti staða sem
byrja á sama bókstaf. Skipst er á um að
nefna nöfnin. Sá sem að lokum getur ekki
bætt við nafni hefur tapað.
13 • Nefnið einhvern stað. Sá næsti á að
bæta við staðarnafni sem byrjar á sama staf
og hitt orðið endaði.
14 . Semjið sögu saman! Allir í bílnum segja
eitt orð í einu. Kannski byrjar hún þannig:
Einu - sinni - var - lítill - Marsbúi ... Ef til vill
verður hún um álfa eða tröll eða ...
— Gaman væri að fá senda sögu sem fjöl-
skyldan semur í bíl.
15 • Tuttugu spurningar. Einn farþeginn á
að hugsa sér þekktan mann, hlut - eða eitt-
hvaó annað. Hinir eiga að reyna að komast
að því hvað það er með því að spyrja spurn-
inga, þó ekki fleiri en tuttugu. Þeim er svarað
með já eða nei...
16. Ef þið eigið ferðatæki og heyrnartæki
getið þið hlustað á eftirlætislögin ykkar (og
sloppið við að hlusta á vélarhljóðið eða mús-
íkina sem mamma og pabbi vilja hlusta á í út-
varpinu ...).
17. Syngið! Það er um að gera að taka
söngbók með og rifja upp lög sem allir kunna.
18. Flver telur hraðast aftur á bak frá hund-
rað að einum? Það getur orðið erfitt að dæma
um hvort allar tölur hafa verið nefndar en
reynið samt!
19. Hver þekkir lagið? Skiptist á um að
syngja örfáa tóna úr lagi. Hinir eiga að keppa
um hver fyrstur getur nefnt heiti þess (eða
höfund/textahöfund eða þann/þá sem hafa
flutt lagið).
20. Þá er bara eftir að sofa um stund.
Mundu að hafa eftirlætiskoddann þinn með!
Þegar þú vaknar aftur gætir þú verið tuttugu
kílómetrum nær áfangastað en þegar þú
sofnaðir...
(Stuðst var við texta eftir Helenu Netzell.
Teikningar: Gunilla Kvarnström. Birtist áður í
sænska tímaritinu Kamratposten, fjöibreyttu
og ágætu blaði fyrir börn og unglinga).
2 8 Æ S K A N