Æskan - 01.05.1994, Page 57
LÝÐVELDISAFMÆLISINS
MINNST í SKÓLUM
Frá Laugarnesskóla feng-
um við ágæta frásögn,
skólablað og myndir:
Dagana 14.-18. mars sl.
minntust kennarar og nem-
endur í Laugarnesskóla 50
ára afmælis lýðveldisins.
Það tækifæri var notað til
að varpa Ijósi á gífurlegar
breytingar sem hafa orðið á
þjóðfélaginu frá stríðslokum
hvað varðar búsetu, at-
vinnulíf, fjölskyldur, sögu
okkar og menningar-arfleifð.
Bækur, brúður, fánar og
veggspjöld voru m.a. búin til
Mörg börn ortu ættjarðar-
Ijóð, tóku viðtöl og sömdu
sögur. Sérstakt sönghefti
var gefið út af þessu tilefni
og daglega var sungið. 12
ára nemendur settu á svið
þjóðhátíðina 1944.
Allir bekkir skólans fóru til
Þingvalla, fengu leiðsögn og
gengu þar um markverða
staði.
Skólablað Laugarnesskól-
ans var af þessu tilefni til-
einkað lýðveldisafmælinu.
Ásdis, Bergþóra, Ásta og Aðalheiður með brúður i íslenskum þjóðbúningum sem þær
bjuggu til í lýðveldisvikunni.
Ung börn sungu íslensk þjóðlög og sýndu íslenska þjóðdansa í vikunni.
Æ S K A N 5 7