Æskan - 01.05.1994, Side 35
Þegar þið fáið þetta tölu-
blað Æskunnar í hendur
verður lokið viðureign Hou-
ston Rockets og New York
Knicks í úrslitum bandarísku
úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik. En 9. júní, þegar
þetta er skrifað, hefur ein-
ungis einn leikur farið fram
og lauk honum með sigri
Houston.
Nú er raunar talað um að
þetta verði einvígi Hakeems
Olajuwons og Patricks
Ewings. Þessir snilldarleik-
menn, tveir af bestu miðherj-
um heims, eru jafnaldrar, 31
árs, og jafnháir, 213 sentí-
metrar! Þeir hafa einu sinni
áður mæst í úrslitum, í há-
skóladeildinni 1983, en þá
tapaði lið Hakeems fyrir liði
Patreks í æsispennandi leik.
Við sögðum frá Hakeem í
4. tbl., nú er röðin komin að
Patreki. Hann var fæddur á
Jamaíku en nam við háskól-
ann í Georgetown (Georgs-
borg). Á háskólaárum sínum
var hann talinn einn besti
körfuknattleiksmaður sem fram
hafði komið enda lék lið hans í
úrslitakeppni háskólanna (í
NCAA-deildinni) þrjú ár af þeim
fjórum sem hann var í skólanum
og sigraði 1984. Hann var kosinn
besti leikmaður þess tímabils.
Sama ár voru hann og Michael
Jordan atkvæðamestir í sigurliði
Bandaríkjanna á Ólympíuleikun-
um. Hann skoraði að meðaltali
15,2 stig í háskóladeildinni
og náði 9,2 fráköstum í leik -
en var einkum dáður sem
stórkostlegur varnarmaður.
Hann var valinn fyrstur af ný-
liðum 1985 og kjörinn nýliði
ársins tímabilið 1985-1986.
Lið hans hefur ekki leikið í
úrslitum síðan 1973 en þá
vann það LA Lakers.
Patrekur var í „draumalið-
inu“, bandaríska landsliðinu
sem keppti á Ólympíuleikun-
um í Barselónu 1992 - ásamt
Michael Jordan, Charles
Barkley, Magic Johnson,
Scottie Pippen, David Robin-
son og John Stockton, sem
allrr hafa verið á síðum Æsk-
unnar, og Larry Bird.
Honum hefur sífellt farið
fram og tókst nú ásamt bar-
áttuglöðum félögum sínum
að komast á tindinn, í lokaúr-
slit úrvalsdeildarinnar. Hann
var t.a.m. maðurinn á bak við
sigur liðs síns í viðureign við
Indiana Pacers í 7. leiknum í
undanúrslitunum. Þá gerði
hann 24 stig, tók 22 fráköst, átti
sjö stoðsendingar og varði fimm
skot.
Nú er 20. júní og leikar standa
jafnir - 3:3! Báðir risarnir hafa
sýnt snilldarleik. Úrslit ráðast eftir
tvo daga.
Æ S K A N 3 S