Æskan - 01.05.1994, Page 6
(leikkonu í Dallas) þegar hún heim-
sótti kvikmyndaverið meðan myndin
var tekin. í febrúar flugum við með
John Ritter frá New York og spjöll-
uðum við hann á leiðinni („Problem
Child“). Steven Spielberg kom til
okkar 15. júní 1993 en þann dag var
haldið upp á fimm ára afmæli þeirra
því að þeir áttu frí 16. júní.
Við hittum líka Paulu Abdul og
Emelio Estevez þegar við litum til
Rósu O’Donnell að tjaldabaki við
leiksýninguna „Grease" en þangað
var okkur boðið af framleiðanda
Steinaldarmannanna."
Hvað þykir drengjunum
skemmtilegast að gera?
„Hlyni finnst skemmtilegast að
fara í Disneyland en Marinó að búa
til snjókarl."
- Hvaða matur finnst þeim best-
ur?
„Hlyni líkar pitsa (flatbaka) best en
Marinó „lasagna“.“
- Hvaða leikara dá þeir mest?
Hlynur: John Goodman (sem leik-
ur Fred), Rosie O’Donnell, Melanie
Silver.
Marinó: John Goodman og Elaine
Silver.
- En íþróttamenn - íþróttalið -
hljómsveitir - tónlistarmenn?
Hlynur: Michael Jordan og „Bulls“
- „Tag Team“ - Michael Jackson.
Marinó: Enginn einn íþróttamaður
- „Mighty Ducks“ - „The Proclai-
mers“ og „The Beach Boys“.
- Hvaða kvikmyndir hafa þeim
þótt skemmtilegastar - aðrar en
Steinaldarmenn?
Hlynur: Aftur til framtíðar, „Teena-
ge Mutant Ninja Turtle".
Marinó: „Mighty Ducks 2“, E.T.,
Aleinn heima.
- Annað sem þeir vilja segja
krökkum - aðdáendum sínum á ís-
landi...
„Þökk fyrir að sjá bíómyndina
okkar - og munið að taka til í her-
berginu ykkar, það þurfum við að
gera!“
Þá erum við orðin nokkurs vísari
um þessa ungu leikara og þökkum
þeim og foreldrum þeirra greið svör.
6 Æ S K A N