Æskan - 15.12.1925, Qupperneq 4
96
Æ S K A N
Lúk. 2, 1—U.
Ú er hún komin enn á ný
hátíðin, sem mestan á
undramátt yfir mönnunum.
Enn af nýju finnum tíö
líða oss í brjóst þennan
undraverða einkennilega yl,
sem aldrei vermir hjartað heitar en á
jólum.
Dægurdeilur gleymast og hugir manna
sameinast. Handtakið verður hlýrra og
brúnin verður bjartari. Sálin stækkar,
og velvildar- og vinarhugurinn nær
til fleiri samferðamanna þetta kvöld,
en nokkur kvöld önnur. Það er sem
himininn færist nær jörðu, eða jarðlífið
lyftist nær himninum þetta kvöld, en
nokkra aðra stund ársins.
Og það er eðlilegt, því að þessa stund
gistir hann hjá oss, öllum stundum
fremur, góði gesturinn, sem er oss bezt-
ur bróðir og vinur og verndin og hjálp-
in í öllu. Og í hans nafni ber ég fram
jólaósk mína og óska ykkur öllum af
hjarta, í Jesú nafni:
Oleöileg jól!
Jólaóskin mín nær í fyrsta lagi til
þeirra, sem eiga jólin fyrst og fremst:
Til ykkar barnanna yngri og eldri, sem
þetta lesa eða heyra. Því er svo varið
um oss, sem eldri erum, að þó árin
komi yfir oss, þá erum við öll meira
og minna ykkur skyld og ykkur sam-
huga þetta kveld. Við gleðjumst með
ykkur af ljósunum, sem prýða híbýlin
eða jólatréð. Og vér rennum huganum
flestir langar leiðir aftur í tímann.
Liðnir áratugir hverfa fyrir auganu og
við erum í anda komin aftur að móð-
urknjám eins og þið. Þar horfum við
á ljósið, sem mamma okkar gaf okkur
og þar gleöjumst við og fögnum yfir
gjöfum hennar, sem hafa þó ef til vill
verið margfalt smærri og fátæklegri en
ykkar. — Þetta eru fegurstu minning-
arnar, sem við eigum til. Petta eru
björtustu draumarnir, sem við minnumst,
þegar við vorum börn á jólunum eins
og þið eruð nú. Við eigum enga minn-
ing bjartari, enga fegurri eða unaðs-
legri, enga saklausari og helgari en þá,
er við gátum glaðst af hinu smáa og
sáum jafnvel í lágu barnakertinu inn í
víðar veraldir birtu og ljóss, og lilum
þar í anda ljómann af Drottins dýrð.
— í’ví að Ijómann af dýrð sjálfs
Drottins verðum við að sjá, til þess að
geta átt heilög jól. Annars eru ljósin al-
geng ljós og viðhöfnin algebg viðhöfn.
Barnið í Betlehem verður að birtast
fyrir barnsauganu til þess að hinn ytri
ljómi skyggi ekki á jólin sjálf. Og því
óska ég ykkur börnunum þess, að þið
megið sjá Betlehemsbarnið í anda, að