Æskan

Volume

Æskan - 15.12.1925, Page 5

Æskan - 15.12.1925, Page 5
Æ S K A N 97 það fái lýst inn í hjörtu ykkar og að ljóminn af dýrð Guðs sonar fái búið í hjarta ykkar fram til síðustu stundar. í Jesu nafni óska ég ykkur: Gleðileg jól! Þeirri jólaósk minni beini ég ekki aðeins til barnanna, heldur og til ung- mennanna. Ég sný máli mínu sérstak- lega til þeirra. Ég get að vísu vænst þess, að svo þyki sem ég þurfi ekki að óska ungmennunum meiri gleöi, heldur meiri alvöru. Menn munu hugsa, að gleðin sé æskunnar eign hvort sem er, en alvöruna þyrfti hún að eignast. þó dettur mér ekki i hug að óska æskunni neins ann- ars fremur, en djúprar og hreinnar gleði. Því að ég held að hennar þurfi hún mest. Ég veit að gleði æskunnar er ein- att talin full-hávær, — en er hún þá að sama skapi djúp? Ég veit að gleði æskunnar er oft hvað háværust einmilt um jólaleytið og mætti því ætla að hún ætti öðrum fremur gleðileg jól. Þeirri gleði er einatt rétt lýst í orðum skáldsins: »Dillandi. hljóðfæri dansana slá, alt er tómur unaður, ulan að sjá!« En er unaðurinn þá aðeins að utan? Hvernig mundi vera umhorfs i huganum eftir langa dans- eða drykkjunótt? Mun pað ofmælt, að sá unaður standi ekki djúpt og hafi jafnvel verið aðeins að utant í gleðiþrá sinni leitar æskan oft þangað sem: Alt er í boði, sem augun girnast manns, nema auðnan sem Zeí/mVíhjartafylgsnum hans. Æskunni slendur svo margt til boða, sem menn ná ekki síðar. Æskunni fylgir jafnaðarlegast heilsa og þróttur, kæti og Ijör. Hún á ótalmörg tækifæri til að gleðj- ast, tækifæri, sem ellinni eru algerlega bönnuð En að hvaða gagni koma æsku- manninum þau tækifæri, ef þar er ekki »auðnan sem leynist í hjartafylgsnum hans«. Enginytri gæfa, lán eða hagsæld verður nokkurs virði, ef henni fylgir ekki þetta, sem skáldið nefnir »auðnu í hjarta- fylgsnunum«. — Gleðiháværðin gagnar ekkert, ef að maðurinn er ekki glaður inni á sér. — Og fyrir því óska ég ykkur ungmennunum djúprar og hreinn- ar jólagleði, í samfélagi við Jesúm Krist, afþví að ég veit, að þá er maðurinn glaður inni á sér. Sú gleði er meira en wunaður að utan«. Sú gleði er auðna, er leynist í hjartafylgsnum manna, jafnvel þó að skugga beri á. Sú gleði er varanleg. Sú gleði er eilif eign. Guð gefi þá öllum ungmennum þessa hina eilífu eign! Guð láti alla verða þá auðmenn að eignast unaðinn hið innra, — unað samfélagsins við Jesúm. Guð gefi ykkur öllum þá uppsprettu alls unaðar nú á helgri hátíð sinni, þá öðlist þér í sannleika gleðileg jól! Jólanóttin. Dýrðar-nótt! — Pér hneigir veröld hljóð, heilags anda návist kennir Ijóst, — andblœr pinn er hjartnœmt helgi-ljóð, himinn opinn við pill móðúr-brjóst, — blœjan stjörnum stráð stafar jriði, náð, voldug himindjúpin, lög og láð. Stilt er sérhver sál samktið djúpum rólt við pitt móðurmál, mitda jótanótt. Syngið, syngið, — heyrið hjartaslög heilags Gnðs i jólanœlur blœ! llringið, hringið, — ódauðleikans lög leifra stað/esl yfir motd og sœ! Mikli meistarinn, mannkyns leiðloginn, hann er kominn, kominn — jrelsarinn! Honum syngi sœlt sérhver tunga’ á jörð, drótt af drottins œtt, dýrð og pakkargjörð! Guðm. Guðmundsson.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.