Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 15.12.1925, Qupperneq 7

Æskan - 15.12.1925, Qupperneq 7
ÆSK AN 99 ekki mt'iddur, við skulum lola honum að iljúga sem fyrst«. Svo fór hún með hanri út og slepli honum og þau horfðu öll á eflir honum upp í heiðbláan himininn. En hvað litlu börnin voru glöð, nú máltu allir á bænum til að fá að vita það sem skeð hafði. Fyrst fóru þau upp á Ioft til ömmu, hiín sat á rúminu sínu og varaðprjóna. Þau hlupu til hennar og sögðu henni sög- una og amma horfði á þau undan gler- augunum og gladdist með þeim, hún á- minti þau um að vera vorkunnarsöm við menn og málleys- ingja, sem æltu bágl. Svo fóru þau út í fjós til Guðna gamla; hann var að gefa kúnum, þegar þau komu í fjósið oghann fékk að heyra sömu söguna; en hann fræddi þau á því, að það ætti aldrei að taka veiðina af keltinum, hvort sem það væri heldur fugl eða mús, því þá hætti hann alveg að veiða. »Já, en gerir það til, svona bara um jólin?« sagði Siggi litli. »Pað er alveg sama þólt það sé um jólin«, sagði Guðni, »og ekki hóli belra fyrir það; kötturinn verður alveg ónýtur að veiða og lítur ekki við músunum, það er alveg satt, það hafa sannorðir sagt. Eða þætli ykkur gott, ef mýsnar gengju Ijósum logum og ætu allan jóla- matinn upp til agna, eins og hann legg- ur sig?« Siggi litli stóð agndofa og slarði á Guðna, en eftir nokkra stund sagöi hann; »En ef maður reyndi að úlvega honum kjöt í staðinn? Eg veit að mamina gefur honum steikarbila í kveld, ef ég bið hana«. »t*að hefir enga þýðingu, það sem er ónýtt, verður ónýtt, hvernig sem að er farið og svo fer um köttinn, hann veiðir ekki framar, þið skuluð sanna orð inín«. »Ætlarðu ekki að gefa kúnum góðan mat í kveld?« sagði Stína. »Þær fá töðu eins og vant er«, sagði Guðni. »Það þyrfti að gefa þeim hangikjöt og jólagraut og svo sætt kaffi á eftir«, sagði Siggi. »Alt af ertu skáld«, sagði Guðni, »það yrði þá lítið eftir handa fólkinu, held ég«. Fau fóru nú úr fjósinu og heim að bænum; þá kom mamma þeirra út og sagði þeim að nú mættu þau fara til hennar Gunnu og segja henni, að þau vonuðust eftir henni heim að Hvammi um kveldið. Fau voru viljug til þess og hoppuðu á stað auslur túnið og létu snjóinn gusasl npp með fótunum og ofan á skóna. Tunglið var komið upp og gægðist fram fyrir fjallið, það varpaði skærri birtu yfir jörðina, snjókornin tindruðu fyrir fótum manna og stjörnurnar leiftr- uðu á bláu himinhvolfinu, já, það mátti með sanni segja, að veðrið var eins og það átti að vera á jólunum. Gunna gamla var ekkja og bjó i lít- illi baðstofu utan við bæinn í Hjáleig- unni; hún hafði búið þar allan sinn bú- skap, en þegar bún misti manninn og brá búi, fékk hún að hýrast í baðslofu-

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.