Æskan

Volume

Æskan - 15.12.1925, Page 26

Æskan - 15.12.1925, Page 26
118 Æ S K A N y< vy y< y< y< y< NX SX W y< >•< y< >x >X y< >•< y< >y y< y< y< y< >x NX NX V< N/ NX y< >X >X >X >.< >.< >.< VX >.< >X >X >X >X >X >x >x >x >x >x >x >.< >x >x >.s >x y/v/ y/y/ y<y< y<y< y< >X y< ^ / < y< y< y* y<yx >vjy< I U M hd Ud y<y< y<y< y< y< y'. y< y< y< y<y{. y<y< Eftir Johannes F ri ð laugsson. NXNX y<y< ^ Með myndum eftir ö/örn Björnsson. ^ ^ ^ y/y< * y<y< y<y< * y<ý< y<y<y<y<>xy<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y<y< >x >.< >.< >.< >.< >.< >.< >x >x >.< >.< >.< >.< >.< >.< >.< >.< >.< >.< >.< >x >x >.< >.< >.s >.< >.< >.< >.< >.< >.< »Pað sem pér gjörið einum af gðar minstu brœðrum, það gjörið pér mér«. AÐ var aðfangadagur jóla. — Steinmóður gamli þrammaði veginn, sem lá úr kaupstaðnum út að Kotinu hans, sem var nokkui n spöl út með vík- inni, sem kaupstaðurinn stóð við. — Snjór var á jörðu og dimm- viðrishríð og færið heldur þungt. Steinmóður gekk löturhægt sama vagg- andi ganginn eins og hann var vanur, þegar hann var að bera vatn fyrir frúrnar inni í kaupstaðnum, sem var hans fasta atvinna allan ársins hring, hvernig sem viðraði. E*að var sama þótt það væri moldviðris norðan-stórhríð á veturna, æfinlega rölti hann inn eftir til að bera vatnið og gera aðra smásnúninga fyrir konurnar í þessum húsum, sem hann hafði lofað að bera vatn fyrir og sækja eldivið. Hann var búinn að vera þarna í Kotinu í fjöldamörg ár og alt af haft þennan starfa á höndum. Öll þau ár hafði enginn dagur liðið svo að hann hefði ekki gert þessi verk. Steinmóður gamli var aldrei veikur. En gigtin — þessi árans meinvættur, kvaldi hann dag og nótt. Þegar hann fór á fætur á morgnana suma dagana fanst honum hann ekki geta hreyft sig fyrir gigtarverkjum, ekki sízt þegar ó- stilt veður var eða veðrabrigði voru í nánd. En gigtarverkirnir liðu frá, þegar hann fór að gegna störfum sinum. »Ég rölti hana af mér, skömmina þá arna«, var hann vanur að segja, þegar kerling hans, hún Bryndís, var að segja honum að liggja í rúminu og hvíla sig. Og það var satt. Hann rölti hana af sér. Þennan dag var hann samt með allra lakasta móti, sem hann mundi eftir. Um morg- uninn var hann á tveimur áttum, hvort hann ætti að fara inn í Víkina. Gigtin var alstaðar í honum og honum fanst hann ómögulega geta gengið. En svo harkaði hann þetta af sér. þennan dag mátti hann sízt af öllu láta sig vanta; sjálfan aðfangadaginn, því þá voru snún- ingarnir margir, sem hann þurfti að fara fyrir húsmæðurnar. Það þekti hann frá fyrri árum. Og svo var þetta venjulega hans mesti aíladagur ársins, eins og hann komst að orði. Pá var honum jafnan gefið meira af ailskonar matar- tegundum en endiarnær. Nei, þennan dag mátti hann ekki láta sig vanta í Víkinni. Nú var komið fram yfir miðjan dag og farið að rökkva og Steinmóður gamli var á heimleið. Vonir hans um aflann höfðu heldur ekki brugðist. E*að sýndi pokinn, sem bann bar á bakinu. Sjaldan hafði honum fénast meira af allskonar mat og kaffibrauði en í þetta sinn. Seinast hafði frú Sigríður, kona Björns kaupmanns, stungið niður i pokann vænni rúllupylsu og tveimur kertuin og vænni jólaköku. »Blessunin sú arna«. Hún var oft drjúg að skjóta til hans matarbita. Greiðviknari en sumar hinar frúrnar, sem sjaldan létu nokkuð af hendi rakna, nema þessa fáu aura fyrir

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.