Valsblaðið - 24.12.1962, Page 4

Valsblaðið - 24.12.1962, Page 4
2 VALSBLAÐIÐ Úr skýrslum aðalstjórnar og deilda Aðalfundur Knattspyrnufél. Vals var haldinn í Félagsheimilinu 6. des. s.l. Lá skýrsla stjómarinnar fjölrituð fyrir. Formaður, Sveinn Zoega, flutti ræðu um félagsstarfið og vitnaði í kafla úr skýrslunni, en þar var og það helzta sem gerðist í deildunum. 1 ekýrslunni segir m. a.: „Stjórnin hefur látið útbúa merki af Valnum á flugi, úr gulli, silfri og eir. Samkvæmt ákvæðum viðurkenninga- kerfis félagsins, skal veita gullmerkið eftir 15 ára starf, silfurmerkið eftir 10 ára starf og eirmerkið eftir 5 ára starf og miðast við að störfin hafi verið unn- in fyrir félagið eftir 19 ára aldur fé- lagsmanna. Það hefur verið mikið áhugamál stjórnar Vals um langan tíma, að fá varanlega og sæmandi skrifstofu fyrir félagið til fundarhalda og geymslu á öllum skjölum og skilríkjum félagsins sem og gjöfum og verðlaunagripum. Segja má að öll skjöl og eignir félags- ins liggi undir stórskemmdum vegna plássleysis. Stjórnir og nefndir á veg- um félagsins hafa engan samastað nema utan félagssvæðisins sjálfs og þá að sjálfsögðu fjarri þeim gögnum er þeim annars væri handhægt að liafa aðgang að. Nú er þó svo komið að vænta má góðrar skrifstofu á næsta ári í hinni nýju viðbyggingu við íþróttahúsið. Er þetta mikið gleðiefni öllum þeim er störf þurfa að vinna fyrir Val á kom- andi árum. Stjórnin samþykkti að láta útbúa lít- inn fallegan eirskjöld af Valsmerkinu til stofuprýðis hjá félögum Vals. Ætlast er til að selja skildi þessa til ágóða fyrir félagsstarfið. Verður merki listamannsins Ásmundar Sveinssonar af Valsmerkinu notað í þessu skyni. Reglugerð um á hvern hátt skjöldur þessi skuli seldur og notaður, bíður næstu stjórnar“. Um framkvæmdir á Hlíðarenda segir m. a. í skýrslunni: „1 sal íþróttaliússins voru settar upp körfuknattleikskörfur og gólfið merkt fyrir körfuknattleik. Byrjað var á inn- réttingu á viðbyggingunni að austan- verðu við húsið. Lokið er einangrun veggja nýs búningsherbergis, áhalda- geymslu og stjórnarherbergis. Múrhúð- un er einnig lokið á búningsherbergi og áhaldageymslu. Austurbaðinu var breytt og gangurinn framlengdur út í nýbygginguna. Páll Gutinason, hinn nýkjörni formaSur, hefur verifi í Vnl frá œsku, unglinmleiStogi um skeið meS góSum áranuri; liefur átt sæti í stjórn Vals undanfariS. Hreinsað var burt allt stórgrýti kring- um húsið og svæðið allt sléttað og síð- an tyrft. Einnig var lóðin fyrir framan liúsið tyrfð“. Þá var í skýrslunni rætt nokkuð um erfiðan fjárhag, án þess að sérstakar tillögur væru fram lagðar. Að lokum segir svo í skýrslunni. „Stjórnin vill að lokum þakka öllum þeim, sem unnið hafa að málum fé- lagsins á einn eða annan hátt, fyrir ánægjulegt samstarf og þann skerf sem þeir hafa lagt fram til að lyfta okkar kæra félagi hærra og hærra að því marki, sem félag okkar keppir að í nafni vináttu og drengskapar“. Reikninga félagsins las gjaldkeri, Páll Guðnason, og ennfremur voru lesn- ir upp reikningar einstakra nefnda sem fjármál liafa með höndum. Urðu nokkrar umræður um skýrsl- una og reikningana. Fram kom tillaga um það að gera aðalfund félagsins að fulltrúafundi deilda þeirra og nefnda sem starfa í félaginu, en hún var felld með jöfnum atkvæðum. Þá var samþykkt svofelld tillaga: „Aðalfundur Vals, 1962, samþykkir að láta fara fram athugun á öllum fjár- málum félagsins, með það fyrir augum að reyna að koma þeim á eins öruggan grundvöll og kostur er. Felur fundur- inn formönnum og gjaldkerum: Aðal- stjórnar, deilda svo og Fulltrúaráðs, að annast þetta, og leggja tillögur sínar fyrir félagsstjórn og Fulltrúaráð, sem gangi svo sameiginlega frá málum, eigi síðar en fyrir lok febrúar n.k.“. Á fundinum aflienti Árni Njálsson, fyrir hönd Islandsmeistara Vals í kvennaflokki, snotra mynd af flokkn- um, og fékk það ósvikið lófatak fund- armanna. STJÓRNARKJÖR Stjórnarkjör í aðalstjórn Vals fyrir næsta kjörtímabil fór þannig, að for- maður var kjörinn Páll Guðnason, en Sveinn Zoega baðst eindregið undan endurkosningu, og voru lionum þökk- uð störfin. Meðstjórnendur voru kjöm- ir Gunnar Vagnsson, Einar Björnsson, Geir Guðmundsson og Ormar Skeggja- son. 1 varastjórn voru kosnir: Haukur Gíslason og Sigurbjörn Valdimarsson. Endurskoðendur voru endurkjörnir þeir Jón G. Bergmann og Magnús Helgason. V ^ Fundurinn var allf jölmennur og lím- ræður töluverðar. Fundarstjóri var Æg- ir Ferdinandsson, en fundarritari Matt- hías Hjartarson. -K

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.