Valsblaðið - 24.12.1962, Qupperneq 5
VALSBLAÐIÐ
3
Úr ársskýrslu
knattspyrnudeildar Vals
Á aðalfundi Knattspyrnudeildar Vals
lagði stjórn hennar fram glögga og ítar-
lega skýrslu um starfsemi deildarinnar.
Því miður er ekki liægt að birta hana í
heild, en reynt verður að skýra frá því
helzta sem þar kemur fram.
Stjórnin hélt 19 bókaða fundi, og sátu
auk hennar varamenn á þeim öllum.
Eitt fyrsta verk stjórnarinnar var að
ráða þjálfara fyrir hina ýmsu flokka,
og skipaðist það þannig: Fyrir annan
flokk Geir Guðmundsson, fyrir þriðja
flokk Haukur Gíslason og fyrir fjórða
flokk Sigurður Ólafsson við inniæfing-
ar og fyrir fimmta flokk Þórarinn Ey-
þórsson, Murdo var einnig ráðinn fyrir
þriðja, fjórða og fimmta flokk.
Fyrir meistara- og fyrsta flokk var
ráðinn Óli B. Jónsson og segir um það
orðrétt í skýrslunni:
Aðalverk stjórnarinnar var hið
margra ára gamla vandamál með út-
vegun á góðum þjálfara fyrir meistara-
og fyrsta flokk. Svo vel vildi til, að ÓIi
B. Jónsson, sem þjálfað hefur KR í
mörg ár, var á lausum kili, og átti for-
maður viðræður við hann um þjálfun
meistara- og fyrsta flokks fyrir Val.
Samkomulag náðist til eins árs, frá 1.
janúar til 31. desember 1962.
Óli B. Jónsson er talinn einn snjall-
asti þjálfari landsins, og hafa leikmenn
Vals vel kunnað að meta hinar ágætu
æfingar lians, skipulag allt og þann
áhuga, sem hann liefur sýnt flokkum
þeim, sem hann liefur þjálfað. Það eru
mörg ár síðan leikmenn meistaraflokks
hafa verið í jafn góðri æfingu eins og
síðastliðið keppnistímabil. Árangurinn
kom líka í ljós. Meistaraflokkur lék
aukaleik til úrslita um Islandsmeistara-
tignina, og þó sigurinn liafi ekki orðið
okkar megin, verðum við að þakka
þann árangur sem náðist, og vona, að
verði Óli B. Jónsson hjá Val áfram, sé
þessi árangur í sumar aðeins forleikur
að sigurgöngu næstu ára.
Mikil rækt var lögð við fyrsta flokk,
enda sigraði sá flokkur í Reykjavíkur-
og miðsumarsmótinu. Stjórnin þakkar
Óla fyrir lians ágæta starf og vonar, að
áframhald geti orðið á starfi lians fyrir
félagið.
ÁRANGUR HINNA YMSU FLOKKA
1 skýrslunni er allítarleg skýrsla um
frammistöðu flokkanna, sem á hverjum
tíma verður að kalla fulltrúa Vals, og
munu margir liafa gaman af að fá sem
gleggstar upplýsingar um það hvernig
þessir fulltrúar liafa staðið sig, og
hvernig þeim hefur tekizt að halda
uppi merki Vals. Fer liér á eftir orð-
rétt úr skýrslu stjórnar deildarinnar,
kaflinn um árangurinn:
Alls sendi Valur 11 lið til keppni í
32 mótum, og liggur nærri, að 100 pilt-
ar hafi leikið í sumar fyrir hönd fé-
lagsins.
Hér fer á eftir árangur flokkanna:
a) Meistaraflokkur varð nr. 3 í Reykja-
víkurmótinu, og var það lélegri ár-
angur en búizt var við. Þeir skor-
uðu 13 mörg gegn 4 og lilutu 4 stig.
Að öllum tilskildum leikjmn lokn-
um í Islandsmótinu, voru Valur og
Fram efst, og urðu því að leika til
úrslita. Valur tapaði þessimi úrslita-
leik, sem háður var í ofstoparoki,
svo heppni réð meiru en leikni og
geta. I Islandsmótinu skoraði flokk-
urinn 17 mörk gegn 9, og hlaut 13
stigi. 1 bikarkeppninni tapaði meist-
araflokkur fyrir Fram. Leikflestu
menn í sumar eru Björgvin Her-
mannsson, Þorsteinn Friðþjófsson og
Bergsteinn Magnússon, sem leikið
liafa alla leiki. Fyrirliði var Ormar
Skeggjason. — Alls hafa leikið 18
menn í meistaraflokki í sumar.
b) Fyrsti flokkur vann Reykjavíkur- og
miðsumarsmótið, en í liaustmótinu
urðu þeir nr. 3. 1 bikarkeppninni
vann flokkurinn Þrótt, en tapaði
fyrir I. deildarliði iBK. 1 fyrsta
flokki léku alls 25 menn. Leikflestir
í sumar eru Guðmundur Ásmunds-
son, Hans Guðmundsson og Bergur
Guðnason. — Fyrirliðar hafa verið
Hjálmar Baldursson og Hilmar
Magnússon.
í Reykjavíkurmótinu gerðu þeir 7
mörk gegn 3 og hlutu 5 stig.
1 miðsumarsmótinu gerðu þeir 5
mörk gegn 2 og hlutu 5 stig.
í bikarkeppninni gerðu þeir 9 mörk
gegn 8 og hlutu 3 stig.
1 liaustmótinu gerðu þeir 7 mörk
gegn 4 og lilutu 3 stig.
c) Annar flokkur A. 1 Reykjavíkurmót-
inu tókst flokknum lieldur illa upp.
Þeir gerðu 10 mörk gegn 8, og hlutu
þriðja sæti með 3 stig. 1 Islandsmót-
inu unnu þeir alla sína leiki, nema
hvað þeir gerðu jafntefli við iBV,
sem varð til þess, að þeir þurfa að
leika aftur við sama félag. Af þess-
um leik liefur ekki getað orðið enn-
þá, vegna samgönguerfiðleika við
Vestmannaeyjar. Haustmótinu er
ekki loltið, þar sem Valur á eftir
að leika við KR. Fyrirliði var Guð-
mundur Páll ögmundsson.
d) Annar flokkur B. 1 Reykjavíkurmót-
inu varð flokkurinn nr. 2. 1 mið-
sumarsmótinu urðu þeir nr. 2, eftir
að liafa gert jafntefli bæði við Fram
og KR. Haustmótið unnu þeir.
1 Reykjavíkurmótinu gerðu þeir 7
mörk gegn 2 og hlutu 2 stig.
Þeir fylkja liSi í íþróttahúsi Vals, og búa sig undir átök og orustur þegar vorar.